Fjölskyldutrygging sem hentar vel einstaklingum og fjölskyldum sem eru að hefja búskap eða minnka við sig eftir að börnin eru farin að heiman. Uppfyllir grunnþarfir fjölskyldunnar á hagkvæman máta.
Greiðir bætur vegna tjóns á innbúi af völdum bruna, vatns og innbrots.
Greiðir bætur vegna slyss í frítíma, við heimilisstörf eða nám.
Greiðir tjón sem þú eða aðrir sem falla undir trygginguna eru gerðir ábyrgir fyrir.
Greiðir bætur vegna skyndilegra tjóna á innbúi og persónulegum munum.
Greiðir málskostnað vegna ágreinings í einkamálum.
Greiðir tilfallinn kostnað vegna sérfræðistuðnings.
Greiðir bætur vegna slysa og veikinda á ferðalagi erlendis.
Greiðir bætur vegna tjóns á farangri á ferðalagi erlendis.
Greiðir bætur vegna tafar á afhendingu farangurs.
Greiðir andvirði fyrirframgreiddrar ferðar ef sá sem tryggður er kemst ekki í ferðina.
Upptalning er ekki tæmandi. Sjá nánar skilmála tryggingar.
Heimilisvernd 2 er grunntrygging fjölskyldunnar og hentar vel einstaklingum og fjölskyldum sem eru að hefja búskap eða minnka við sig. Hún bætir tjón á innbúi heimilis og öðrum persónulegum munum og slys á fjölskyldumeðlimum í frítíma, við heimilisstörf eða við nám. Heimilisverndin inniheldur einnig ábyrgðartryggingu, og fyrir þá sem vilja ferða- og forfallatryggingar.
Tryggingin nær til tryggingataka, maka/sambýlismaka og ógiftra barna. Þessir einstaklingar þurfa að eiga sameiginlegt lögheimili á Íslandi, búa á sama stað og hafi sameiginlegt heimilishald.
Innbú eru munir sem fylgja almennu heimilishaldi og telst ekki vera hluti af fasteign eða almennu fylgifé hennar. Hlutir sem þú myndir almennt taka með þér við flutninga teljast til innbús. Við mælum hinsvegar með því að dýrir hlutir, líkt og listmunir, skartgripir, dýr reiðhjól, sérstök tómstundaáhöld og annað sem þarf að skoða sérstaklega og þarf jafnvel að sértryggja. Bætur vegna tjóns á slíkum munum eru háðar reglum um hámarksbætur sem gera það að verkum að bæturnar kunna að vera lægri en raunverulegt verðmæti hlutanna.
Ferðatrygging er valkvæð viðbót í Heimilisvernd 2. Viðbótin inniheldur ferðasjúkratryggingu, farangurstryggingu og forfallatryggingu.
Það getur verið mjög misjafnt. Tryggingar eru mismunandi milli kreditkorta og við mælum með að þú skoðir vel hvaða tryggingar fylgja kreditkortinu þínu.
Við mælum með að dýrir hlutir, líkt og listmunir, munir með söfnunargildi, dýr reiðhjól og önnur dýr tómstundaáhöld séu tryggðir sérstaklega. Bætur vegna tjóns á slíkum munum eru háðar reglum um hámarksbætur sem gera það að verkum að bæturnar kunna að vera lægri en raunverulegt verðmæti hlutanna.
1
2
3
4
Innbústrygging
Innbúskaskó
Ábyrgðartrygging
Slysatrygging í frítíma
Sjúkrakostnaður innanlands vegna frítímaslysa
Umönnunartrygging barna
Sjúkrahúslegutrygging
Réttaraðstoðartrygging
Áfallatrygging
Ferðarofs- og sjúkrakostnaðartrygging
Farangurtrygging
Farangurstafatrygging
Forfallatrygging
Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur meira skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Brunatrygging húseigna bætir tjón á fasteign af völdum eldsvoða.
Víðtæk og alhliða vernd fyrir fasteignina sem tekur til óvæntra áfalla og óhappa á borð við leka, óveðurs og innbrota.
Mikilvægt öryggisnet ef til slysa eða veikinda kemur eða sem öryggissjóður fyrir þá sem eftir standa ef við föllum frá.