fréttir

Jóhannes hreppti aðalvinninginn!

23. ágúst 2021

Búið er að draga út aðalvinninginn í Regluverðinum í ár og sá heppni er Jóhannes Þór Sigurðsson úr Golfklúbbi Suðurnesja. Dregið var úr fjölmennum hópi þeirra sem tóku þátt í golfleiknum í sumar. Jóhannes vann sér inn glæsilega sjö daga golfferð fyrir tvo til La Sella á Spáni í boði Golfsögu. Regluvörðurinn er golfleikur Varðar og Golfsambands Íslands sem nýtur mikilla vinsælda en hann sameinar bæði gagn og gaman og um leið eiga spilarar kost á glæsilegum verðlaunum. Í leiknum geta kylfingar kannað þekkingu sína á golfreglunum og þeir sem standast prófið fá hin eftirsóknarverðu Regluvarðar verðlaun. Vinsældir leiksins hafa aukist jafnt og þétt frá því hann hóf göngu sína fyrir níu árum síðan en í sumar tóku um 36.500 notendur þátt. Leiknum er einnig ætlað að vekja athygli á Golfvernd Varðar, sem er sérstök trygging fyrir kylfinga gegn þjófnaði á golfbúnaði og öðrum óvæntum atvikum utan vallar sem innan. Vörður óskar Jóhannesi innilega til hamingju með vinninginn og þakkar um leið öllum þeim sem tóku þátt í golfleiknum í sumar.

Ingvar Örn Einarsson forstöðumaður Varðar, Jóhannes Þór Sigurðsson vinningshafi, Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ og Hörður Hinrik Arnarson frá Golfsögu.

author

Vörður tryggingar

23. ágúst 2021

Deila Frétt