Vörður aðalstyrktaraðili Breiðabliks

17. maí 2024

Við erum afar stolt að tilkynna að samningur milli Varðar og Breiðabliks hefur verið framlengdur til ársins 2026. Samstarf Varðar og Breiðabliks á sér langa og farsæla sögu, en Vörður hefur verið bakhjarl knattspyrnudeildarinnar frá árinu 2010. Samningurinn er mikilvægur fyrir báða aðila, þar sem hann styður við meistaraflokka félagsins í efstu deild karla og kvenna. Jafnframt styrkir hann öflugt uppeldis- og afreksstarf stærstu knattspyrnudeildar landsins. 

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar: "Í starfi okkar hjá Verði leggjum við ríka áherslu á forvarnir. Íþróttir hafa fyrir löngu sannað gildið sitt sem öflug forvörn, bæði þegar kemur að heilsufars- eða félagslegum þáttum. Með samstarfi okkar við Breiðablik, einu öflugasta íþróttafélagi landsins, getum við í sameiningu haldið áfram að hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag."

Saman vilja Vörður og Breiðablik stuðla að hollri hreyfingu og heilbrigðu líferni og þannig styðja þannig við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um heilsu og vellíðan. Regluleg hreyfing hefur margþættan ávinning fyrir heilsuna, hún minnkar líkur á sjúkdómum, eykur lífsgæði og lengir lífið. 

Vörður hlakkar því mikið til áframhaldandi samstarfs.   Áfram Breiðablik! 

author

17. maí 2024

Deila Frétt