fréttir

Vörður er Framúrskarandi fyrirtæki 2019.

24. október 2019

Vörður prýðir lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2019. Viðurkenningin, sem aðeins 2% fyrirtækja á Íslandi hljóta, er staðfesting á góðum árangri félaganna og frábæru starfi starfsfólks.

Í ár skipa 874 fyrirtæki lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki og byggist hann á rekstri og fjárhagsstöðu fyrirtækjanna á árinu 2018. Þetta er tíunda árið í röð sem Creditinfo tekur saman listann en fyrirtækin þurfa að uppfylla fjölmörg skilyrði til að fá að bera þennanmeftirsótta titil. Þetta er áttunda árið í röð sem Vörður er á listanum. Verðmæt fyrirtæki Fyrirtækin sem komast á lista Creditinfo sýna stöðugleika í rekstri og skapa þannig verðmæti og störf. Þau standa á traustum stoðum og eru því jafnframt ekki líkleg til að valda samfélaginu kostnaði. Til að komast á listann þarf að uppfylla ýmis skilyrði, m.a. að hafa skilað ársreikningi til RSK síðastliðin þrjú ár, líkur á alvarlegum vanskilum séu undir 0,5% og að rekstrarhagnaður hafi verið jákvæður þrjú ár í röð. Þá þarf eiginfjárhlutfallið að hafa verið 20% eða meira og eignir 100 milljónir eða meira að meðaltali þrjú rekstrarár í röð.

Gerum enn betur Það er ánægjulegt að Vörður uppfyllir öll skilyrðin og sé á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2019. Það er okkar markmið að gera betur á allan hátt, hvort sem það er í þjónustu og samskiptum við viðskiptavini okkar, samskiptum við okkar frábæra starfsfólk, eða með hagkvæmum rekstri félagsins. Við erum staðráðin í að halda áfram á sömu braut. Hafðu samband við ráðgjafa okkar ef þú vilt vera í samskiptum og viðskiptum við framúrskarandi fyrirtæki.

author

24. október 2019

Deila Frétt