forvarnir

Óveður í aðsigi

06. febrúar 2022

Óveður er í aðsigi og mun vonskuveður ganga yfir landið aðfaranótt mánudags. Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun fyrir landið allt og rauð viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið, Faxaflóa og Suðurland. Sérlega djúp og áköf lægð nálgast landið úr suðvestri og eru líkur taldar á því að áhrif veðursins verði umtalsverð. Alls staðar er búist við suðaustan stormi, roki eða ofsaveðri. Lægðinni fylgir mikil snjókoma og því er útlit fyrir skafrenningi víðast hvar. Miklar líkur eru á foktjóni og ófærð og því er fólki ráðlagt að ganga vel frá lausa munum og er verktökum bent á að ganga vel frá framkvæmdarsvæðum. Á höfuðborgarsvæðinu verður hvassast á Kjalarnesi og í efri byggðum. Búast má við ófærð innan hverfa og miklar líkur eru á foktjóni. Ekkert ferðaveður er á landinu meðan veðrið gengur yfir. Alls staðar er útlit fyrir samgöngutruflanir.

Gott að hafa í huga fyrir óveður

Húsnæði og aðrar eignir    

  • Gangið úr skugga um að þakplötur séu tryggilega festar, einnig þakrennur, grindverk og þess háttar.

  • Heftið fok lausra muna utandyra. Trampólín, útihúsgögn, jólaskraut og grill fara gjarnan af stað í ofsaroki.

  • Fullvissið ykkur um að öllum gluggum og hurðum sé tryggilega lokað.

  • Fylgist með veðri og tilkynningum.

Ferðalög og mannamót

  • Aflýsið ferðalögum og mannamótum og sendið ekki börn í skóla nema í samráði við skóla.

  • Metið hvort ferðir út á land séu nauðsynlegar og hvort fresta eigi för vegna slæmrar veðurspár.

  • Hlustið á tilkynningar og/eða viðvaranir sem kunna að vera gefnar í sjónvarpi eða útvarpi.

Upp­lýs­ing­ar má sjá á vef Veður­stof­unn­ar og Vega­gerðar­inn­ar. 

Viðbrögð við tjóni
  • Mundu ef þetta er neyðartilvik að hafa strax samband við 112.

  • Ef ekki skaltu gera þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru, til að draga úr tjóni sé þess nokkur kostur en farið jafnframt að öllu með gát.

  • Þegar þú hefur brugðist við þá er næsta skref að tilkynna tjónið hjá okkur.

  • Að senda myndir með tjónstilkynningu getur flýtt fyrir afgreiðslu.

  • Mat á umfangi tjóns eða viðgerðar hefst ekki fyrr en veðrinu hefur slotað. Það þarf að vera óhætt fyrir almenning að vera á ferðinni svo að tjónaskoðunarmenn komist á staðinn.

  • Eftir að tjón hefur verið tilkynnt hafa starfsmenn samband við fyrsta tækifæri til að hefja úrvinnslu málsins.

  • Sé brýn neyð á aðstoð vegna tjóns bendum við á neyðarsímann 514 1099 sem opin er allan sólarhringinn.

author

Vörður tryggingar

06. febrúar 2022

Deila Frétt