forvarnir

Jarðskjálftar á Reykjanesskaga

02. ágúst 2022

Jarðskjálftahrina gengur nú yfir á Reykjanesi og hafa höfuðborgarbúar og íbúar á Suðurnesjum fundið vel fyrir skjálftunum. Íbúar eru hvattir til þess að huga að lausa- og innanstokksmunum sem geta fallið við jarðskjálfta og huga sérstaklega að því að ekki geti fallið lausamunir á fólk í svefni. Viðbúið er að grjóthrun geti orðið við þessar aðstæður og fólk er beðið um að hafa vara á undir bröttum hlíðum. Á vef Veðurstofunnar má sjá upplýsingar um jarðskjálfta sem verða á landinu.

Hvaða tryggingar taka á jarðskjálftum?

Náttúruhamfaratrygging Íslands bætir tjón á öllum brunatryggðum fasteignum sem verða fyrir tjóni vegna jarðskjálfta. NTÍ bætir einnig tjón á innbúi og lausafé, en þó aðeins ef það er brunatryggt hjá almennum tryggingafélögum. Viðskiptavinir í Heimilisvernd Varðar eru með brunatryggingu á innibúi og lausafé og því tryggðir hjá NTÍ vegna jarðskjálfta og annarra náttúruhamfara. Engu síður er mikilvægt að fara yfir tryggingar á innbúi og lausafé til að tryggja að það fáist bætt ef tjón verður.

Á Mínum síðum hefur þú aðgang að öllum upplýsingum um tryggingarnar þínar. Ef spurningar vakna um tryggingavernd þína getur þú haft samband við Vörð í síma 514 1000. Einnig getur þú átt samskipti við okkur í gegnum netspjall á www.vordur.is og heimsótt okkur á þjónustuskrifstofu okkar í Glerártorgi á Akureyri.

Hvað á að gera ef það verður jarðskjálfti?

For­varn­ir á heim­il­um eru mik­il­væg­ar þegar kemur að jarðskjálftum sem gera sjaldan boð á undan sér, til að minnka lík­ur á slys­um og tjón­um. Hér eru nokkur góð ráð:

Hvernig hugað skal að húsnæði:

  • Festið skápa, hillur og þunga muni í gólf eða veggi. Hafið hjól sem eru á húsgögnum alltaf í læstri stöðu. Ef engin læsing er á hjólunum, setjið þá ramma utan um hjólin til að koma í veg fyrir að húsgagnið fari af stað í jarðskjálfta. Munið hinsvegar að rammi eða læsing á hjólum kemur ekki í veg fyrir að húsgagnið velti

  • Látið þunga muni ekki vera ofarlega í hillum eða á veggjum nema tryggilega festa. Hægt er að nota kennaratyggjó til að tryggja að léttari munir færist ekki úr stað við jarðskjálfta

  • Festið kynditæki og ofna. Kynnið ykkur staðsetningu vatnsinntaks og rafmagnstöflu

  • Festið myndir og ljósakrónur í lokaðar lykkjur

  • Hafið þungan borðbúnað staðsettan í neðri skápum og skúffum og setjið öryggislæsingar eða barnalæsingar á skápahurðir til varnar að innihald þeirra falli út úr þeim

  • Fyrirbyggið að hlutir geti fallið á svefnstaði

  • Gangið vel frá niðurhengdum loftum og upphækkuðum gólfum

  • Byrgið glugga eða setjið öryggisfilmu á rúður til að koma í veg fyrir skæðadrífu glerbrota ef rúða brotnar. Látið rúm ekki standa undir gluggum ef hætta er á jarðskjálftum

  • Hlustið á tilkynningar og fyrirmæli sem gefin eru í útvarpi og munið: Krjúpa-skýla-halda

Ef þú ert innandyra þegar þegar jarðskjálfti byrjar– ekki hlaupa af stað:

  • Haltu kyrru fyrir, mörg slys verða þegar hlaupið er af stað

  • Farðu undir borð eða rúm og haltu þér í borð-  eða rúmfót

  • Krjúptu niður í horni við burðarvegg eða í hurðaropi við burðarvegg

  • Verðu höfuð þitt og andlit með kodda- ef þú vaknar upp við jarðskjálfta

  • Haltu þig frá gluggum – þeir geta brotnað

  • Láttu vita af þér með SMS þegar jarðskjálftinn hættir

Ef þú er utandyra þegar þú finnur jarðskjálfta – ekki hlaupa inn:

  • Vertu áfram úti

  • Ekki vera nálægt háum byggingum sem geta hrunið eða háum trjám

  • Grjóthrun, skriður og snjóflóð geta fallið úr hlíðum og fjalllendi

  • Raflínur geta verið hættulegar – varist að snerta þær

  • Reyndu að komast á opið svæði þar sem byggingar þrengja ekki að

Ef þú ert að keyra bíl þegar þú finnur jarðskjálfta:

  • Legðu bílnum og stoppaðu. Vegir og brýr geta skemmst í jarðskjálfta

  • Hafðu sætisbeltin spennt

  • Haltu kyrru fyrir í bílnum þar sem hann getur varið þig gegn brotum og braki sem fer af  stað í jarðskjálfta – hlustaðu á útvarpið, þar koma jafnan fyrstu upplýsingarnar um jarðskjálftann.

author

Vörður tryggingar

02. ágúst 2022

Deila Frétt