Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár

12. september 2024

Aðalvinningurinn í Regluverðinum 2024 hefur verið dreginn út og nafnið sem kom upp úr pípuhattinum að þessu sinni er Inga Lilý Gunnarsdóttir! Við óskum Ingu Lilý hjartanlega til hamingju með vinninginn – dásamlega sjö daga golfferð fyrir tvo til Fairplay Golf & Spa Resort á Spáni í boði Golfsögu og Verdi Travel.

Síðastliðin tólf ár hefur Vörður, í farsælu samstarfi við Golfsamband Íslands, boðið upp á golfleikinn. Leikurinn er spilaður af tugþúsundum einstaklinga á hverju ári. Í leiknum láta þátttakendur reyna á þekkingu sína á golfreglunum og þeir sem standast prófið fá hin eftirsóknarverðu Regluvarðarverðlaun. Leiknum er enn fremur ætlað að vekja athygli á Golfvernd Varðar, sem er sérstök trygging fyrir kylfinga gegn þjófnaði á golfbúnaði og öðrum óvæntum atvikum utan vallar sem innan.

Frá vinstri: Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Verði tryggingum, Inga Lilý Gunnarsdóttirvinningshafi og Árni Páll Hansson frá GolfSögu.

Vörður óskar Ingu Lilý hjartanlega til hamingju með vinninginn og þakkar um leið öllum þeim sem tóku þátt í golfleiknum í sumar!

Golfvernd

Golfvernd er sérsniðin trygging fyrir kylfinga. Tryggðu þig á vellinum og sláðu áhyggjulaust í boltann. Við bjóðum Golfvernd á 50% afslætti fyrsta árið, eða á aðeins kr. 5.315.

Skoða nánar

author

Vörður tryggingar

12. september 2024

Deila Frétt