Kaskótrygging - Upplýsingar fyrir tjónþola


Til að hefja viðgerð
Hér eru upplýsingar um verkstæði sem eru með samning við félagið og hægt er að velja úr til að láta gera við ökutækið.
Hafðu samband við verkstæðið sem þú velur til að fá tíma fyrir viðgerðarmat. Verkstæðið skoðar tjónið, tekur myndir, gerir viðgerðarmat og sendir Verði til samþykkis. Verkstæðið sér svo um að gefa þér tíma í viðgerð.
Vörður greiðir fyrir bílaleigubíl í A flokki í allt að 5 daga meðan á viðgerð stendur. Mörg verkstæði geta séð um að útvega bílaleigubíl. Upplýsingar um bílaleigur með samninga Vörð má finna hér.
Er ökutækið þitt óökufært?
Ef ökutæki þitt var óökufært og flutt af vettvangi, vinsamlegast hafðu samband við tjónamatsmenn okkar í síma 514-1177 eða netfangið [email protected]. Þeir munu skoða bílinn við fyrsta tækifæri og vera í sambandi við þig um framhaldið.