25. febrúar 2026


Vörður og UN Women á Íslandi hafa gert með sér samning um tveggja ára samstarf vegna árlegrar FO-herferðar UN Women á Íslandi.
FO-herferðin er flaggskip UN Women á Íslandi og hafa yfir 100 milljónir safnast frá árinu 2015, sem runnið hafa í að uppræta kynbundið ofbeldi á heimsvísu. Styrkurinn frá Verði mun standa straum af öllum framleiðslukostnaði FO-vörunnar 2026 og gerir UN Women á Íslandi kleift að senda allar tekjur af FO-herferðinni í sérstakt verkefni og í ár fer ágóðinn til verkefni UN Women í Palestínu, bæði á Gaza og á Vesturbakkanum.
„Það er frábært að fá bakhjarl á borð við Vörð fyrir FO-herferðina okkar. Vörður steig ótrúlegt skref í fyrra þegar fyrirtækið bætti við nýrri vernd í heimilistrygginguna sína, sem veitir neyðaraðstoð, í formi fjárhagslegra bóta, fyrir þolendur ofbeldis í nánu sambandi. Það skiptir máli að samfélagið í heild taki þátt í því að uppræta kynbundið ofbeldi, sem Sameinuðu þjóðirnar hafa kallað eitt útbreiddasta mannréttindabrot heims. Fyrirtæki þurfa einnig að taka þátt í þeirri baráttu og Vörður hefur sannarlega gert það. Við erum því mjög stolt af því að tengja FO-herferðina við Vörð. Það er ekki síður mikilvægt að íslensk fyrirtæki horfi samhliða út á við á tímum þegar alþjóðasamvinna á undir högg að sækja og sífellt fleiri ríki draga úr mannúðaraðstoð og þróunarsamvinnu. Þörfin er gríðarleg og fjármagnið í verkefnin hefur aldrei verið minna,” segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar trygginga, tekur undir orð Stellu og segir mikilvægt að standa vörð um réttindi kvenna alls staðar.
„Aðstoð sem UN Women veitir getur verið lífsbjörg á átakasvæðum. Með söfnun FO‑herferðarinnar getur UN Women staðið vörð um réttindi kvenna og meðal annars veitt verðandi mæðrum heilbrigðisþjónustu og sinnt neyðaraðstoð vegna kynbundins ofbeldis. Við hjá Verði erum stolt af því að vera aðalbakhjarl FO‑herferðarinnar næstu tvö árin og hvetjum alla til að leggja herferðinni lið og kaupa nýju FO‑húfuna sem fer í sölu í mars,“ segir Guðbjörg Heiða.

Vörður tryggingar
25. febrúar 2026