19. mars 2026


Hátt í 100 manns sóttu opinn fræðslufund Varðar og Bjarkarhlíðar á þriðjudag undir yfirskriftinni „Þekkjum merkin – Bregðumst við“. Fundurinn er hluti af nýju fræðsluátaki samhliða kynningu á stuðningsleyfi, nýrri tryggingavernd hjá Verði. Fræðsluátakið beinir sjónum að því hvernig vinnustaðir geta stutt starfsfólk sem er þolendur ofbeldis í nánu sambandi. Fyrir marga er vinnustaðurinn mikilvægur og öruggur snertiflötur við samfélagið, þar sem rétt viðbrögð geta skipt sköpum.
Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, fór yfir helstu merki ofbeldis og hvernig stjórnendur og samstarfsfólk geta brugðist við og stutt þolendur ofbeldis í nánu sambandi. Guðbjörg Heiða, forstjóri Varðar, kynnti stuðningsleyfið sem hefur verið innleitt í slysatryggingar fyrirtækja til að veita þolendum aukinn sveigjanleika á meðan þeir vinna úr aðstæðum sínum. Að lokum sögðu Adriana Karolina Pétursdóttir og Helga Halldórsdóttir frá því hvernig Rio Tinto og Arion banki hafa innleitt stefnu til að styðja betur við starfsfólk sitt sem eru þolendur ofbeldis í nánu sambandi. Fundinum var stýrt af Ólafi Kára Júlíussyni vinnusálfræðingi hjá Vinnuvís.
Mikill áhugi var meðal fundargesta á aukinni aðkomu vinnustaða að málaflokknum. Fræðsluátakið mun halda áfram og á næstunni munu vera námskeið í boði á vegum Bjarkarhlíðar. Á heimasíðu Bjarkarhlíðar má finna ýmislegt fræðsluefni. Auk þess geta þeir sem hafa áhuga á að skrá sig á námskeið skráð sig hér, en tilkynnt verður um dagsetningar um leið og þær liggja fyrir.

Vörður tryggingar
19. mars 2026