12. október 2022
Vörður hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2022, fjórða árið í röð. Félag kvenna í atvinnulífinu, ásamt samstarfsaðilum úr forsætisráðuneytinu og viðskiptalífinu standa að hreyfiaflsverkefninu Jafnvægisvogin.
Jafnvægisvogin er viðurkenning til þeirra fyrirtækja og opinberu aðila sem unnið hafa að því markmið og náð árangri í að jafna kynjahlutfall í framkvæmdarstjórnum. Markmið þessa hreyfiafls er að árið 2027 verði kynjahlutfallið 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi. Stór hluti þátttakenda sem skrifað hafa undir viljayfirlýsinguna hafa náð góðum árangri á þessu sviði og fjölgar þeim fyrirtækjum milli ára sem náð hafa markmiðinu og hljóta viðurkenningu. Í ár hlutu 59 fyrirtæki, 6 sveitarfélög og 11 opinberir aðilar viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar.
Stefna Varðar er skýr í jafnréttismálum
Vörður hefur markvisst unnið að jafnrétti innan félagsins undanfarin ár og hefur einsett sér að vera til fyrirmyndar í jafnréttismálum í íslensku atvinnulífi. Vörður hefur frá árinu 2014 starfrækt jafnlaunakerfi og hlotið Gullmerki PCW, jafnlaunavottun VR og jafnlaunamerki velferðarráðuneytisins, fyrst fjármálafyrirtækja. Á síðasta ári hlaut Vörður Hvatningarverðlaun jafnréttismála með áherslu á kynjajafnrétti. Þá er félagið með hæstu einkunn á GemmaQ kynjakvarðanum sem greinir kynjahlutföll í leiðtogastörfum fyrirtækja á Íslandi.
„Vörður hefur á margan hátt verið brautryðjandi í jafnréttismálum hér á landi og hefur ekki gefið neinn afslátt af viðhorfum sínum og afstöðu þegar kemur að jafnfrétti. Við höfum í mörg ár haft skýra sýn og stefnu í málaflokknum sem hefur tryggt sanngirni, jöfn tækifæri og kjör alls starfsfólks. Reynsla okkar er að fjölbreytt samsetning mannauðs auki víðsýni, kalli fram ólík sjónarhorn og fjölbreytta nálgun verkefna, svo ekki sé talað um almenna gleði og ánægju.“ segir Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar.
Vörður tryggingar
12. október 2022