01. desember 2025


Þegar líða fer að jólum fjölgar oft fréttum af eldsvoðum þar sem reykskynjari bjargar mannslífum og kemur í veg fyrir stórbruna. Það er þess vegna sem alþjóðlegur dagur reykskynjarans er í byrjun desember ár hvert en þá er fólk hvatt til að huga að eldvörnum á heimilum sínum. Tveir eða fleiri reykskynjarar eiga að vera á hverju heimili og best er að hafa þá í öllum rýmum.
Reykskynjarar eru ódýr öryggistæki og skerandi vælið í þeim getur bjargað mannslífum. Það er lang skynsamlegast að hafa reykskynjara í öllum rýmum og ef möguleiki er þá er best að hafa þá samtengda þannig að hljóðmerki komi frá þeim öllum ef eldur kemur upp. Reykskynjarar eiga að minnsta kosti að vera framan við eða í hverju svefnherbergi og á hverri hæð á heimilinu. Staðsetjið reykskynjara í lofti, 30-50 cm frá vegg. Ganga þarf úr skugga um að reykskynjarar heimilisins séu í lagi og skipta um rafhlöður í þeim þegar þeir gefa frá sér hljóðmerki. Líftími rafhlaða er mismunandi og erfitt að alhæfa um endingu þeirra.
Árlega er fólk hvatt til að kanna stöðuna á öllum reykskynjurum heimilisins með því einfaldlega að ýta á takkann á hverjum einasta reykskynjara heimilisins. Ef reykskynjarinn er í lagi þá pípir hann við það að ýtt sé á takkann og gefur það til kynna að hann virki. Ef ekkert hljóð heyrist er reykskynjarinn líklega batteríslaus og því gagnslaus með öllu, þá þarf að skipta um batterí hið snarasta. Þegar nýtt batterí er komið í reykskynjarann má svo ekki gleyma að prófa hvort hann virki ekki örugglega. Hefur þú setið í sumarhúsi eða vaknað upp við píp á mínútu fresti? Það er mjög líklega reykskynjari að láta vita að rafhlaðan sé að verða búin.
Samkvæmt gögnum slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins verður breyting á útköllum vegna elds yfir hátíðirnar þar sem tíðni eykst á kvöldin og næturnar samanborið við restina af árinu. Orsakir elds geta verið margvíslegar en á ársgrundvelli má rekja 21% þeirra til rafmagns og 20% vegna eldamennsku. Þetta beinir sjónum okkar að hleðslutækjum, fjöltengjum og jólaseríum. Gætum þess að ofhlaða ekki millistykki og hlaða rafhlaupahjól fjarri flóttaleið og eldfimum efnum. Förum varlega í eldhúsinu, gleymum ekki pottum eða pönnum á hellu og höfum eldvarnarteppi við höndina.
Förum gætilega með opinn eld og loga þegar við lýsum upp skammdegið. Það getur verið hættulegt að vera með kerti við opinn glugga og nálægt gluggatjöldum eða þurru greni. Þarna er samankomin hin eldfima þrenning : logi, súrefni og brennanlegt efni.
Til að einfalda fólki lífið er hér tékklisti yfir það helsta sem snýr að góðum eldvörnum.
Reykskynjarar
Reykskynjarar eiga helst að vera í öllum herbergjum á heimilinu
Prófa alla reykskynjara á heimilinu
Skipta um rafhlöður ef engin eða veik píp heyrast
Staðsetja reykskynjara í lofti, 30–50 cm frá vegg
Setja reykskynjara í eða við svefnherbergi og á hverja hæð
Nota samtengda reykskynjara ef mögulegt er
Slökkvitæki og búnaður
Athuga að slökkvitækið sé í lagi og á réttum stað
Ganga úr skugga um að eldvarnarteppi sé sýnilegt og aðgengilegt í eldhúsinu
Rafmagn og jólatengdur búnaður
Ekki ofhlaða fjöltengi eða millistykki
Skoða að jólaseríur og snúrur séu óskemmdar
Hlaða raftæki og rafmagnshlaupahjól fjarri flóttaleiðum og eldfimum efnum
Slökkva á jólaseríum þegar enginn er heima eða þegar farið er að sofa
Eldamennska
Ekki skilja pott eða pönnu eftir á hellu
Sýna aðgát þegar eldað er úr olíu eða feiti
Hafa eldvarnarteppi eða slökkvitæki innan seilingar
Kertaljós og opinn eldur
Aldrei skilja kerti eftir eftirlitslaus
Halda kerti frá gluggatjöldum, þurru greni og pappír
Varast trekk frá opnum gluggum eða hurðum
Nota kertaundirlag sem þolir hita
Slökkva á kertum áður en farið er úr rýminu eða að sofa
Flóttaleiðir
Ganga úr skugga um að gangar og útgönguleiðir séu ekki þröngir eða stífluðir
Tryggja góða lýsingu á stigagöngum og útgönguleiðum
Með því að gefa sér örfáar mínútur til að fara yfir eldvarnir heimilisins má koma í veg fyrir alvarlega atburði og tryggja sér og sínum meiri öryggi yfir hátíðirnar. Aðventan á að vera tími friðar, birtu og samvista — og með réttum undirbúningi getum við notið hennar á öruggan og áhyggjulausan hátt.
Njótið aðventunnar, farið varlega og hafið eldvarnirnar í lagi.

Ágúst Mogensen
01. desember 2025