forvarnir

Óveður framundan

09. desember 2019

Veðurviðvaranir, bæði appelsínugular og rauðar, hafa nú verið gefnar út í öllum landshlutum fyrir þriðjudaginn 10 desember. Versta veður ársins nálgast nú landið og fólki  er ráðlagt að vera ekki á ferðinni á meðan það gengur yfir. Ef þú lendir í tjóni er gott að hafa eftirfarandi í huga.

Viðbrögð við tjóni
  • Mundu ef þetta er neyðartilvik að hafa strax samband við 112.

  • Ef ekki skaltu gera þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru, til að draga úr tjóni sé þess nokkur kostur en farið jafnframt að öllu með gát.

  • Þegar þú hefur brugðist við þá er næsta skref að tilkynna tjónið hjá okkur.

  • Að senda myndir með tjónstilkynningu getur flýtt fyrir afgreiðslu.

  • Mat á umfangi tjóns eða viðgerðar hefst ekki fyrr en veðrinu hefur slotað. Það þarf að vera óhætt fyrir almenning að vera á ferðinni svo að tjónaskoðunarmenn komist á staðinn.

  • Eftir að tjón hefur verið tilkynnt hafa starfsmenn samband við fyrsta tækifæri til að hefja úrvinnslu málsins.

  • Sé brýn neyð á aðstoð vegna tjóns bendum við á neyðarsímann 514 1099 sem opin er allan sólarhringinn.

GOTT AÐ HAFA Í HUGA FYRIR OFSAVEÐUR

Húsnæði og aðrar eignir    

  • Gangið úr skugga um að þakplötur séu tryggilega festar, einnig þakrennur, grindverk og þess háttar.

  • Heftið fok lausra muna utandyra. Trampólín, útihúsgögn, jólaskraut og grill fara gjarnan af stað í ofsaroki

  • Fullvissið ykkur um að öllum gluggum og hurðum sé tryggilega lokað.

  • Fylgist með veðri og tilkynningum.

Ferðalög og mannamót

  • Aflýsið ferðalögum og mannamótum og sendið ekki börn í skóla nema í samráði við skóla

  • Metið hvort ferðir út á land séu nauðsynlegar og hvort fresta eigi för vegna slæmrar veðurspár

  • Hlustið á tilkynningar og/eða viðvaranir sem kunna að vera gefnar í sjónvarpi eða útvarpi.

Upp­lýs­ing­ar má sjá á vef Veður­stof­unn­ar og Vega­gerðar­inn­ar. 

author

09. desember 2019

Deila Frétt