forvarnir

Umferðaröryggi skólabarna

08. september 2022

Árlega slasast 56 börn á aldrinum 0-14 ára sem gangandi eða hjólandi vegfarendur í umferðinni. Til viðbótar slasast árlega 53 börn í bifreiðum og tvö til þrjú í hópbifreiðum í þessum sama aldurshópi en þessar upplýsingar má lesa úr slysaskýrslu Samgöngustofu. Nú er umferð farin að þyngjast eftir sumarleyfin og skólarnir byrjaðir. Daginn er tekið að stytta og næturfrost hefur gert vart við sig. Velferð og heilsa yngstu vegfarendanna í umferðinni, sem nú eru að hefja skólagöngu sína er forgangsmál og því vil ég fara yfir nokkur atriði sem tengjast öryggi þeirra.

Örugga leiðin í skólann

Það er góð regla að finna og æfa bestu leiðina að heiman og í skóla með börnunum. Hvaða leið er öruggust? Hvar eru gangbrautir og undirgöng? Forðist leið meðfram eða yfir götur þar sem umferð er þung, hraði mikill og götulýsing er léleg. Ef verið að fara í skóla á rafskutlu eða hjóli þurfa foreldrar að fylgjast vel með veðri þar sem fljótlega getur orðið hált á morgnana. Að sjálfsögðu þarf ljósabúnaður að vera í lagi og hjálmur notaður.

Með endurskinsmerki séstu 5x betur

Daginn er tekið að stytta og bráðum verður myrkur á morgnana þegar börn eru á leið í skólann, og helst þannig fram í miðjan mars. Endurskinsmerki auka sýnileika margfalt og hafa sumar rannsóknir sýnt að ökumenn sjái manneskju með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr samanborið við þá sem ekki nota endurskinsmerki. Miðum við að vera búin að útvega okkur endurskinsmerki fyrir 1. október, ef ekki fyrr. Víða er hægt að nálgast ókeypis endurskinsmerki, eins og hjá tryggingafélögum, og ættu börn og fullorðnir að verða sér úti um nokkur stykki.

Skólaakstur

Þar sem börnum er ekið til skóla, í sund eða annað frístundastarf þarf að fara yfir reglur um skólaakstur. Allir nemendur og farþegar eiga að sitja í sætum sínum og nota bílbelti. Dæmi eru um slys á börnum sem notuðu ekki bílbelti í hópbifreið í skólaakstri. Þá þarf að ræða hættuna sem fylgir því ef hlaupið er að bifreiðinni eða á eftir henni á ferð. Það eru mörg blindsvæði kringum stóra hópbifreið, fyrir bílstjórann sjálfan, krakkana og aðra umferð.

30 km hverfin og vistgötur

Ökumenn verða að hafa sérstakar gætur á börnum í umferðinni. Yngstu börnin geta átt erfitt með að meta fjarlægð, hraða bíla og úr hvaða átt hljóð berst. Þau fá oft skyndihugdettu og rjúka til, jafnvel út á götu. Vistgötur og 30 kílómetra hámarkshraði í íbúagötum eru öryggisatriði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, þ.m.t börn á leið í skóla. Lægri hraði eykur líkur á að ökumaður geti stýrt frá hættu eða hemlað fyrr og dregur úr meiðslum ef árekstur verður. Rannsóknir hafa sýnt að gangandi vegfarendur eiga ágætis möguleika að sleppa við alvarleg meiðsli ef hraði í árekstri er undir 30 km/klst. Sé hraðinn hærri aukast líkindi á alvarlegu slysi.

Ef leiðin sem barnið þitt þarf að fara í skóla er hættuleg vegna flókinna umferðarmannvirkja eða vöntunar á umferðarmannvirkjum þá skaltu ræða það við veghaldara í sveitarfélaginu og skólayfirvöld. Hverfahópar á Facebook geta líka verið ágætis umræðuvettvangur til að bæta umferðaröryggi. Verum sanngjörn í umræðu en gleymum því samt aldrei að öryggissjónarmið eiga alltaf að ráða ferðinni.

Höfundur er sérfræðingur í forvörnum hjá Verði tryggingum.

author

Vörður tryggingar

08. september 2022

Deila Frétt