tilkynningar

Lokum tímabundið fyrir heimsóknir

24. mars 2021

Við stöndum vörð um samfélagið og lokum tímabundið þjónustuskrifstofum okkar í Borgartúni, Reykjanesbæ og á Akureyri frá og með 25. mars. Við tökum vel á móti þér á Mínum síðum, í netspjalli eða í síma 514 1000. Þú getur einnig bókað fjarfund eða símtal á vordur.is. Á Mínum síðum getur þú fengið allar upplýsingar um þínar tryggingar, séð reikninga og greiðslur, tilkynnt tjón og breytt greiðsluupplýsingum. Á vef Varðar getur þú fengið upplýsingar um tryggingar sem við bjóðum, fengið tilboð í tryggingar og komið í viðskipti. Tryggjum öryggi okkar og förum eftir öllum tilmælum almannavarna, hugum vel að persónulegu hreinlæti til að draga úr sýkingarhættu og virðum takmarkanir. Umfram allt förum varlega og pössum upp á hvert annað.

author

Vörður tryggingar

24. mars 2021

Deila Frétt