fréttir

Kristjana hreppti aðalvinninginn!

24. ágúst 2022

Búið er að draga út aðalvinninginn í Regluverðinum í ár og sú heppna er Kristjana Þórey Guðmundsdóttir úr Golfklúbbi Vatnsleysustrandar. Dregið var úr fjölmennum hópi þeirra sem tóku þátt í golfleiknum í sumar. Kristjana Þórey vann sér inn glæsilega sjö daga golfferð fyrir tvo til Fairplay á Spáni í boði Golfsögu.

Regluvörðurinn er golfleikur Varðar og Golfsambands Íslands sem nýtur mikilla vinsælda en hann sameinar bæði gagn og gaman og um leið eiga spilarar kost á glæsilegum verðlaunum. Í leiknum geta kylfingar kannað þekkingu sína á golfreglunum og þeir sem standast prófið fá hin eftirsóknarverðu Regluvarðar verðlaun. Vinsældir leiksins hafa aukist jafnt og þétt frá því hann hóf göngu sína fyrir tíu árum síðan en í sumar heimsóttu yfir 50.000 notendur leikinn.

Leiknum er einnig ætlað að vekja athygli á Golfvernd Varðar, sem er sérstök trygging fyrir kylfinga gegn þjófnaði á golfbúnaði og öðrum óvæntum atvikum utan vallar sem innan.

Vörður óskar Kristjönu innilega til hamingju með vinninginn og þakkar um leið öllum þeim sem tóku þátt í golfleiknum í sumar.

Frá vinstri: Ingvar Örn Einarsson markaðsstjóri Varðar, Hulda Bjarnadóttir forseti GSÍ, Kristjana Þórey Guðmundsdóttir vinningshafi og Árni Páll Hansson frá GolfSögu.

author

Vörður tryggingar

24. ágúst 2022

Deila Frétt