Vatnsvarnir

Vatnstjón er ein algengasta orsök tjóna á heimilum. Eru þínar vatnsvarnir í lagi?

Vatnstjón er ein algengasta orsök tjóna á heimilum og eru óþægileg fyrir heimilisfólk og fjölskyldulífið. Huga þarf sérstaklega að votrýmum eins og eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi en við hvetjum fólk líka til þess að láta skoða lagnagrind reglulega. Ef þú ert í vafa hafðu þá samband við fagmann. Almennt tekur húseigendatrygging á tjónum sem verða á húseigninni sjálfri.

Nokkur góð ráð innandyra
  • Hafið auga með óeðlilegum raka, breyttri áferð (bólgum) á málningu, parketi eða múr.

  • Látið laga sírennsli í salerni, það velur raka á lögnum til lengri tíma.

  • Horfið eftir raka í gluggum og við útidyr.

  • Vatnsskynjarar geta verið góð forvörn og er hægt að tengja við öryggiskerfi.

  • Hreinsið gólfniðurföll reglulega svo þau stíflist ekki, sem og önnur niðurföll innandyra.

  • Komist að því hvar á að skrúfa fyrir vatnsinntök heita og kalda vatnsins. Merkið inntökin.

Nokkur góð ráð utandyra
  • Hreinsið niðurföll og rennur. Laufblöð og sandur getur stíflað frárennsli.

  • Almennt á vatn að renna frá húsinu þínu eða hafa greiða leið þaðan. Réttið af öfugan vatnshalla ef plön eru farin að síga, hafið niðurföll við kjallaratröppur. Vatnið þarf að komast sína leið.

  • Fylgist með ástandi glugga, hurða og klæðninga. Gott að er að þekkja viðhalds- og byggingasögu eignarinnar.

Viðbrögð við vatnsleka
  • Lokið strax fyrir vatnsinntakið.

  • Hafið sérstaka varúð ef vatnið er mjög heitt.

  • Ef erfitt er að eiga við aðstæðurnar eða möguleg hætta á ferðum hringið þá í 112.

  • Hafið samband við neyðarsímann til að fá aðstoð strax frá sérfræðingi.

  • Tilkynnið tjónið eins fljótt og mögulegt er.

Er húseignin þín tryggð fyrir vatnstjóni?

Húseigendatrygging bætir tjón sem verður á húseigninni sjálfri, m.a. vegna vatnstjóns og tjón á innréttingum.