Stuðningsleyfi vegna ofbeldis í nánu sambandi er ný tryggingavernd fyrir þolendur ofbeldis. Verndinni er ætlað að auðvelda fyrirtækjum að styðja við starfsfólk svo það geti frekar breytt aðstæðum sínum án þess að óttast tekjutap.


Það skiptir máli að fyrirtæki geti stutt við starfsfólk sitt þegar á reynir.
Þolendur ofbeldis í nánu sambandi geta veigrað sér við að breyta aðstæðum sínum, meðal annars af ótta við fjarveru frá vinnu. Með stuðningsleyfi vill Vörður auðvelda fyrirtækjum að bregðast við af ábyrgð og styðja starfsfólk sitt á krefjandi tímamótum.
Fyrirtæki geta nú fengið bætur vegna launaðs leyfis starfsfólks sem er að breyta aðstæðum sínum vegna ofbeldis í nánu sambandi. Verndin er innifalin í Slysatryggingu launþega, Slysatryggingu, Sjúkra- og slysatryggingu og Áhafnatryggingum og er viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

Opinn fundur um hvernig vinnustaðir geta stutt starfsfólk sem verður fyrir ofbeldi í nánu sambandi verður haldinn þriðjudaginn 17. mars kl. 08:45.
Á fundinum fjöllum við um ofbeldi í nánum samböndum og hvernig stuðningur atvinnurekenda getur skipt sköpum fyrir starfsfólk sitt. Kynnt verður ný tryggingavernd, stuðningsleyfi vegna ofbeldis í nánu samband, sem er nú hluti af slysatryggingum fyrirtækja.
Einnig verður fjallað um reynslu af innleiðingu aðgerðaáætlana fyrirtækja og mikilvægi þess að þolendur upplifi öryggi, stuðning og valdeflingu.

Vinnustaðurinn getur gegnt lykilhlutverki þegar þolendur ákveða að taka fyrstu skrefin í átt að öryggi og frelsi. Það getur því skipt sköpum að atvinnurekendur styðji við starfsfólk og veiti því svigrúm til að sækja nauðsynlega þjónustu.
Hjá Bjarkahlíð má finna frekari upplýsingar um hvernig stjórnendur geti þekkt merkin, brugðist við og stutt starfsfólk í slíkum aðstæðum.

Tryggingin greiðir bætur til starfsmanns vegna slyss sem viðkomandi verður fyrir í starfi sínu hjá vinnuveitanda. Tryggingin greiðir nú einnig bætur til vinnuveitanda vegna stuðningsleyfis.

Tryggingin hentar vel fyrir einyrkja og fyrirtæki. Hún veitir fjárhagslega vernd fyrir tryggðan verði hann fyrir tímabundinni eða varanlegri örorku í kjölfar slyss við vinnu eða í frítíma.

Tryggingin hentar vel fyrir einyrkja og fyrirtæki. Hún veitir fjárhagslega vernd fyrir tryggðan verði hann fyrir tímabundinni eða varanlegri örorku í kjölfar slyss eða sjúkdóms við vinnu eða í frítíma.

Áhafnatrygging er fyrir áhöfn smábáta og skipa en tryggingin inniheldur slysatryggingu, líftryggingu og farangurstryggingu.
Við höfum bætt við nýrri viðbótarvernd, stuðningsleyfi vegna ofbeldis í nánu sambandi, inn í fjórar mismunandi fyrirtækjatryggingar; slysatryggingu launþega, slysatryggingu, sjúkra- og slysatryggingar og áhafnatryggingar.
Þessi vernd kemur í framhaldi af Neyðaraðstoð vegna ofbeldis í nánu sambandi sem varð hluti af heimilistryggingum hjá Verði 2025.
Með stuðningsleyfi vill Vörður auðvelda atvinnurekendum að styðja enn betur við starfsfólk sitt, sem er að vinna sig út úr ofbeldissambandi, með því að veita þeim leyfi til að takast á við aðstæður án tekjuskerðinga.
Verndin veitir fjárhagslegar bætur vegna tímabundinnar fjarveru starfsmanns og bætist við án kostnaðar.
Stuðningsleyfi er fyrir öll fyrirtæki með slysatryggingu launþega og áhafnatryggingar hjá Verði. Verndin er ætluð til að styðja starfsmenn í að breyta aðstæðum sínum vegna ofbeldis í nánu sambandi.
Stuðningsleyfi er jafnframt fyrir alla með slysatryggingar hjá Verði sem eru að vinna í því að breyta aðstæðum sínum vegna ofbeldis nánu sambandi og hafa því ekki tök á því að sinna vinnu sinni.
Verndin er fyrir öll kyn.
Verndin er hluti af Slysatryggingu launþega, Slysatryggingu, Sjúkra- og slysatryggingu og Áhafnatryggingum. Markmiðið með verndinni er að gera atvinnurekendum kleift að styðja enn betur við starfsfólk sitt og gera því frekar kleift að breyta aðstæðum sínum.
Verndin nær til atvika sem hafa átt sér stað á síðastliðnum 12 mánuðum. Tryggingin þarf að hafa verið til staðar þegar atvik átti sér stað.
Verndin gildir fyrir öll kyn og kemur án viðbótarkostnaðar.
Verndin er ekki valkvæð heldur alltaf hluti af þessum tryggingum.
Til þess að hefja umsóknarferlið fyrir slysatryggingu launþega og áhafnatryggingar þarf prókúruhafi fyrirtækis að auðkenna sig.
Fyrir slysatryggingar þarf hinn tryggði að auðkenna sig.
Þolandi fær í kjölfarið senda yfirlýsingu til samþykkis með rafrænum skilríkjum. Tilgangur yfirlýsingarinnar er að heimila Verði að leita staðfestingar frá þeim fagaðila sem þolandi leitaði til.
Eftir að beiðnin hefur verið send til Varðar tekur sérþjálfað starfsfólk við henni og hefur samband við þann fagaðila sem þolandi tilgreinir, líkt og Kvennaathvarfið eða Bjarkarhlíð.
Fagaðilinn staðfestir að einstaklingur sé að vinna í að koma sér út úr ofbeldi í nánu sambandi með aðstoð þeirra.
Við greiðum svo út bæturnar þegar staðfesting fagaðila liggur fyrir.
Með fagaðilum er átt við aðila sem sérhæfa sig í að þjónusta þolendur ofbeldis í nánum samböndum. Til að mynda:
Kvennaathvarfið
Heimilisofbeldisteymi Landspítalans
Þolendamiðstöðvar á borð við Bjarkarhlíð
Bjarmahlíð á Akureyri
Sigurhæðir á Selfossi
Suðurhlíð í Reykjanesbæ
Stuðningsleyfi vegna ofbeldis í nánu sambandi er ný viðbót í Slysatryggingu, Sjúkra- og slysatryggingu, Slysatryggingu launþega og Áhafnatryggingar. Verndin er nú innifalin í öllum tryggingum sem eru þegar í gildi.
Hún er ekki valkvæð heldur hluti af tryggingunni og kostar ekkert aukalega.
Hægt er að hafa samband við okkur í gegnum netfangið [email protected] og við aðstoðum þig við að senda inn umsókn án rafrænna skilríkja.
Verndin er fyrir öll kyn.
Til þess að geta sótt í tryggingarverndina þarf viðkomandi að hafa sótt þjónustu fagaðila í ákveðinn fjölda skipta á síðastliðnum 12 mánuðum. Með fagaðilum er átt við aðila sem sérhæfa sig í að þjónusta þolendur ofbeldis í nánum samböndum. Til að mynda:
Kvennaathvarfið
Heimilisofbeldisteymi Landspítalans
Þolendamiðstöðvar á borð við Bjarkarhlíð
Þessi viðbót við Slysatryggingu launþega, áhafnatryggingar og slysatryggingar Varðar veitir fyrirtækjum sem eru með starfsmenn í vinnu sem verða fyrir ofbeldi í nánu sambandi betri möguleika á að styðja þá starfsmenn með launuðu leyfi þannig þau geti einbeitt sér að því að koma sér út úr aðstæðunum.
Verndin er nú innifalin í öllum tryggingum sem eru þegar í gildi. Hún er ekki valkvæð heldur hluti af tryggingunni og kostar ekkert aukalega.
Með stuðningsleyfi geta fyrirtæki sótt í fastar bætur sem fara upp í þann kostnað sem fellur til við það að gefa starfsmanni sem er að vinna sig úr ofbeldissambandi launað leyfi í allt að 2 vikur.
Í mars 2025 setti Vörður á laggirnar neyðaraðstoð vegna ofbeldis í nánu sambandi. Í kjölfar þeirrar vinnu og fjölda samtala við fagaðila kom í ljós að í sumum tilvikum eiga þolendur erfitt með að fara frá vinnu til að breyta aðstæðum sínum.
Til að styðja enn betur við þolendur ákváðum við að bæta við sérstöku stuðningsleyfi inn í slysatryggingar okkar. Stuðningsleyfið auðveldar vonandi atvinnurekendum að veita starfsfólki sínu meira svigrúm til vinna sig út úr ofbeldissambandi.
Nýja tryggingaverndin er fyrir öll fyrirtæki með Slysatryggingu launþega og Áhafnatryggingu, sem og alla með slysatryggingar.
Verndin fer inn í alla skilmála frá 05.03.2026 og frá og með þeim tíma verður hægt að sækja bætur.
Til að sækja í bæturnar er miðað við að aðstæður hafi breyst á síðastliðnum 12 mánuðum, og þarf tryggingin að hafa verið til staðar þá.
Já, til að eiga rétt á bótum þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Verndin nær til atvika sem hafa átt sér stað á síðastliðnum 12 mánuðum.
Trygging þarf að hafa verið í gildi þegar atvik átti sér stað.
Viðkomandi starfsmaður þarf að hafa sótt þjónustu fagaðila a.m.k. fimm sinnum á síðastliðnum 12 mánuðum.
Með fagaðilum er átt við aðila sem sérhæfa sig í að þjónusta þolendur ofbeldis í nánum samböndum. Til að mynda:
Kvennaathvarfið
Heimilisofbeldisteymi Landspítalans
Þolendamiðstöðvar á borð við Bjarkarhlíð
Fyrirtæki geta sótt fastar bætur upp í kostnað sem hlýst af því að gefa starfsmanni, sem er að vinna sig úr úr ofbeldissambandi, launað leyfi í allt að tvær vikur.
Hægt er að sækja bætur einu sinni vegna hvers starfsmanns í slysatryggingu launþega og í áhafnatryggingum.
Hægt er að sækja dagpeningabætur einu sinni í slysatryggingar.
Nei, ekki er gerð krafa um tilkynningu né kæru til lögreglu.
Það er heldur ekki gerð krafa um sjáanlega líkamlega áverka.
Við þurfum aðeins að fá staðfestingu frá fagaðila um að viðkomandi sé að vinna í að koma sér út úr ofbeldi í nánu sambandi með aðstoð þeirra.
Tilkynning mun ekki hafa áhrif á verð eða kjör.
Vinnustaðurinn er oft einn af fáum stöðum þar sem þolandi getur komist undan eftirliti geranda og fengið andrými. Það getur því skipt sköpum að atvinnurekendur styðji við bakið á starfsfólki og veiti því svigrúm til að sækja nauðsynlega þjónustu.
Einnig getur samstarfsfólk verið vakandi fyrir merkjum sem benda til þess að einstaklingur sé þolandi ofbeldis.
Þannig getur vinnustaðurinn orðið mikilvægur vettvangur þar sem þolandi fær stuðning til að stíga fyrstu skrefin í átt að auknu öryggi.
Þekktu merkin:
Endurtekin meiðsli eða ótrúverðugar skýringar á þeim
Aukin fjarvist, óstundvísi eða skert einbeiting
Tilfinningalegt uppnám, einangrun eða skyndileg breyting á hegðun eða útliti
Óvenjumikið magn símtala, skilaboða eða óvelkominna heimsókna geranda á vinnustað
Vísbendingar um að maki fylgist með eða reyni að hafa óæskileg samskipti
Á vef Bjarkahlíðar má finna greinagóðar upplýsingar um hvernig þekkja megi merkin og hvernig sé best að bregðast við.

Vörður vill hvetja öll fyrirtæki að hafa aðgerðaáætlun til staðar ef starfsfólk verður fyrir ofbeldi í nánu sambandi. Arion samstæðan hefur til að mynda innleitt aðgerðaáætlun vegna ofbeldis í nánu sambandi. Ef þitt fyrirtæki hyggst innleiða slíka áætlun er ykkur velkomið að senda okkur póst á [email protected]. Við erum reiðubúin að miðla reynslu okkar og deila með ykkur efni til að auðvelda ferlið.