29. ágúst 2022
Vörður hefur fengið viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum, fjórða árið í röð. Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Nasdaq Íslandi og Stjórnvísi standa að baki viðurkenningunni. Hún þýðir að starfshættir stjórnar Varðar eru vel skipulagðir og þeir ásamt framkvæmd stjórnarstarfanna eru til fyrirmyndar.
Viðurkenningin byggir á úttekt á stjórnarháttum Varðar sem tekur mið af leiðbeiningum um góða stjórnarhætti, gefnum út af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Íslandi. Stjórnvísi er umsjónaraðili viðurkenningarferlisins. Viðurkenningin er fyrst og fremst veitt til þess að ýta undir umræður og aðgerðir sem efla góða stjórnarhætti.
Vörður tryggingar
29. ágúst 2022