13. nóvember 2023
Eins og hjá öllum landsmönnum er hugur okkar hjá Grindvíkingum og þess vegna höfum við hjá Verði ákveðið að fella niður iðgjöld í desember til allra viðskiptavina okkar í Grindavík.
Með þessu vonumst við til að létta undir með fyrirtækjum og þeim fjölskyldum sem hafa flúið heimili sín svo þau þurfi ekki að hafa áhyggjur af kostnaði vegna trygginga á næsta gjalddaga.
Einstaklingar, fjölskyldur og fyrirtæki sem eru með aðsetur í Grindavík og eru í viðskiptum við Vörð þurfa ekki að greiða iðgjöld trygginga fyrir desember mánuð.
Þetta á við allar tryggingar sem einstaklingar, fjölskyldur og fyrirtæki í Grindavík eru með í gildi.
Þú þarft ekki að sækja um eða gera neitt, þetta gerist sjálfkrafa. Mikilvægt er þó að yfirfara bankaupplýsingar á Mínum síðum.
Ef þú ert að greiða til okkar kröfu 1. desember fellum við hana niður
Ef þú ert með tryggingar á greiðslukorti kemur endurgreiðslan á kortið
Ef þú hefur nú þegar staðgreitt tryggingarnar þínar endurgreiðum við þér inn á bankareikning.
Ef þú ert í vanskilum hjá okkur fer endurgreiðslan upp í skuldina.
Við vinnum núna hörðum höndum að undirbúa niðurfellingu á reikningum eða endurgreiðslum.
Podobnie jak wszyscy obywatele w kraju, nasze myśli są z mieszkańcami Grindavíku i dlatego w Vörður zdecydowaliśmy aby anulować składki ubezpieczeniowe w Grudniu dla wszystkich naszych klientów z Grindavíku.
Mamy nadzieję, że w ten sposób odciążymy firmy i rodziny, które opuściły swoje domy, aby nie musiały martwić się kosztami ubezpieczenia w następnym terminie.
Osoby, rodziny i firmy z siedzibą w Grindavíku ,bedące klientami Vörður nie muszą płacić składek ubezpieczeniowych za miesiąc grudzień.
Dotyczy to wszystkich polis ubezpieczeniowych obowiązujących osoby, rodziny i firmy w Grindavíku.
Nie musisz składać wniosku , dzieje się to automatycznie. Jednakże ważne jest, aby sprawdzić informacje bankowe na Moich stronach. (Minum siðum)
Jeśli masz do zaplaty roszczenie 1 Grudnia, anulujemy je.
Jeżeli posiadasz ubezpieczenie na karcie płatniczej, zwrot następuje wraz z transakcją dokonaną na karcie.
Jeśli opłaciłeś już ubezpieczenie, zwrócimy Ci pieniądze na konto bankowe.
Jeżeli zalegasz z oplatami, spłata przechodzi do wysokości zadłużenia
Obecnie intensywnie pracujemy, aby przygotować się na anulowanie faktur lub zwrot pieniędzy, które powinny być gotowe do końca przyszłego tygodnia.
Vörður tryggingar
13. nóvember 2023
Til að bæta upplifun þína á vefnum og styðja við markaðsaðgerðir.