fréttir

Tímamót hjá Verði

20. október 2022

Guðmundur Jóhann Jónsson forstjóri Varðar hefur tilkynnt stjórn félagsins að hann hyggist láta af störfum hjá félaginu á næstu mánuðum. Guðmundur hefur leitt starf og vöxt Varðar í rúm 16 ár.

„Þetta hefur verið afar ánægjulegur tími og forréttindi að fá að leiða þann góða hóp starfsfólks sem hefur starfað hjá félaginu. Vörður hefur verið í góðum vexti á íslenskum tryggingamarkaði á undanförnum árum og er í kjörstöðu til að halda áfram að vaxa og dafna á næstu árum. Ég mun kveðja félagið sáttur og fullur þakklætis.“ segir Guðmundur Jóhann

Guðmundur hefur leitt fyrirtækið farsællega í gegnum margvíslegar breytingar. Vörður velti hátt í 16 milljörðum króna í fyrra og hagnaðist um tvo og hálfan, og er nú með um 18% markaðshlutdeild eftir mikið uppbyggingarstarf. „Það verða vissulega tímamót hjá félaginu þegar Guðmundur lætur af störfum á næsta ári. Guðmundur hefur verið afar farsæll forstjóri og gegnt lykilhlutverki í vexti og velgengni félagsins á undanförnum árum. Ég vil fyrir hönd stjórnar þakka honum fyrir mjög vel unnin störf og afar gott samstarf.“ segir Benedikt Olgeirsson, formaður stjórnar.

Guðmundur mun gegna starfi forstjóra fram á nýtt ár eða þar til arftaki er fundinn.

author

Vörður tryggingar

20. október 2022

Deila Frétt