Rafræni ráðgjafinn aðstoðar þig og þú sérð strax hvað þín rafhjólatrygging kostar. Tryggðu rafhjólið í fáeinum skrefum.
Tekur á tjóni af völdum óhappa í flutningi, notkun eða geymslu.
Tryggir hjólið þitt fyrir þjófnaði þegar það er ekki í notkun eða í geymslu.
Tekur á skaðabótaskyldu sem þeir sem falla undir tryggingu eru gerðir ábyrgir fyrir.
Upptalning er ekki tæmandi. Sjá nánar skilmála tryggingar.
Þau sem stunda hvers konar hjólreiðar sem almenningsíþrótt eru flest tryggð hafi þau Slysatryggingu í frítíma sem fylgir Heimilisvernd 2, 3 og 4. Afreksfólk ætti að huga vel að vernd sinni og tryggja sig sérstaklega með Almennri slysatryggingu og óska eftir sérstakri áritun þar sem fram kemur að tryggingin nái yfir slys sem eiga sér stað í keppni eða til undirbúnings fyrir keppni.
Slysatrygging í frítíma sem fylgir Heimilisvernd 2, 3 og 4 gildir hvar sem er í heiminum og er hjólreiðafólk því tryggt erlendis.
Slysatrygging í frítíma sem fylgir Heimilisvernd 2, 3 og 4 gildir þegar hjólað er á fjöllum, þó ekki í fjallahjólakeppni.
Slysatrygging í frítíma sem fylgir Heimilisvernd gildir fyrir þau sem eru að keppa eða æfa fyrir keppni ef um er að ræða götuhjólakeppni þar sem almenningi gefst kostur á þátttöku án skilyrða um lágmarksfærni eða getu. Afreksíþróttafólk ætti að huga vel að vernd sinni og tryggja sig sérstaklega.
Slysatrygging í frítíma sem fylgir Heimilisvernd 2, 3 og 4 gildir hvar sem er í heiminum og er hjólreiðafólk því tryggt erlendis.
Ef hjóli er stolið úr læstri íbúð eða bifreið greiðast bætur úr innbústryggingu sem fylgir Heimilisvernd. Hámarksbætur eru 1-2% af tryggingarfjárhæð innbús, allt eftir því í hvaða flokki Heimilisverndin er 1, 2, 3 eða 4. Við mælum alltaf með því að tryggja dýrari hjól sérstaklega með Hjólatryggingu en hún felur jafnframt í sér víðtækari þjófnaðartryggingu.
Hjólatrygging bætir þjófnað á læstu hjóli sem geymt er í læstri geymslu eða öðrum húsakynnum og ef það er geymt utandyra. Þjófnaður á hjóli erlendis fellur undir farangurstryggingu sem er hluti af Heimilisvernd 2, 3 og 4.
Ábyrgðartrygging einstaklings sem fylgir Heimilisvernd 2, 3 og 4 gildir fyrir tjón sem þú veldur öðrum með skaðabótaskyldum hætti, með vissum takmörkunum. Hjólatrygging inniheldur einnig ábyrgðartryggingu sem tekur til tjóna sem þú veldur öðrum.
Öll reiðhjól eru tryggð í Heimilisvernd upp að vissri fjárhæð. Miklir fjármunir geta leynst í reiðhjólum og búnaði og því er mikilvægt að kynna sér hámarksbótafjárhæð í þeirri Heimilisvernd sem þú ert með. Því verðmætara sem hjólið er því mikilvægara er að tryggja það sérstaklega með Hjólatryggingu.
Hjólatrygging bætir tjón á hjóli af völdum skyndilegra og óvæntra óhappa í flutningi, notkun eða geymslu á vátryggingartímabilinu. Skemmdir á reiðhjóli kunna einnig að falla undir innbústryggingu eða innbúskaskó, en þær eru hluti af Heimilisvernd 1, 2, 3 og 4. Hámarksbótafjárhæð er í Heimilisvernd og því þurfa einstaklingar að tryggja dýr hjól sérstaklega með Hjólatryggingu.
Sífellt fleiri kjósa að nota reiðhjól enda heilsusamlegur, umhverfisvænn og hagkvæmur samgöngumáti og hentar öllum, stórum sem smáum og eru sérlega fjölskylduvænar. Margir nota reiðhjól sér til skemmtunar og sumir til íþróttaiðkunar.
Lesa meiraTryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur meira skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.