Vörður vinnur að heilindum að sjálfbærnimálum og vill hafa jákvæð áhrif á þróun málaflokksins út í samfélagið. Við viljum vera öðrum fyrirmynd um ábyrga viðskiptahætti sem taka mið af umhverfi, samfélagi og góðum stjórnarháttum. Þannig stöndum við vörð um samfélagið.
Við stefnum að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi okkar um 80% fyrir árið 2030 m.v. viðmiðunarárið 2018. Við erum á góðri leið því á síðasta ári var losunin komin niður um 64,7%. Mikilvægur þáttur í minni losun var samruni við Arion sem leiddi af sér hagræðingu í húsnæði og sameiginlegri stoðþjónustu. Með samstilltu átaki og markvissum lausnum erum við staðráðin í að gera enn betur og ná settu marki.
Við settum okkur markmið um að hækka hlutfall viðgerða á framrúðum í 15%, í stað þess að skipta þeim út, og við gerðum gott betur. Með markvissum aðgerðum og fræðslu til viðskiptavina og verkstæða tókst okkur að fara fram úr væntingum og náðum hlutfallinu upp í 17,3%. Með hverri viðgerð drögum við úr sóun og sparnaðurinn skilar sér til viðskiptavina og umhverfisins.
Við lögðum mikla áherslu á eldvarnir á síðasta ári því aukning hefur orðið í brunum á heimilum og hjá fyrirtækjum. Örugg hleðsla rafmagnstækja á heimilum var í forgrunni og gáfum við 1.250 reykskynjara til viðskiptavina, auk rafhlaða. Þá tókum við höndum saman með Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og gerðum fræðslumyndbönd um eldvarnir fyrir jólin.
Við urðum líka brautryðjendur í kennslu á mörgæsagangi sem virkar sérlega vel fyrir gangandi vegfarendur í hálku og getur komið í veg fyrir hálkuslys. Við hófum svo samstarf undir lok árs með Samgöngustofu og Eimskip um að draga úr slysum í umferðinni sem orsakast af þreytu.
Við leggjum metnað í að viðhalda góðum starfsanda og starfsánægju og mælum reglulega upplifun starfsfólks af starfsumhverfinu og líðan þess. Við spyrjum starfsfólk ákveðinna spurninga og svörin mynda svo Varðarvísitöluna sem er nokkurs konar púls á starfsánægju. Í fyrra stóð vísitalan í 4,47 en 5 er hæsta gildið.
Jafnrétti er í hávegum haft hjá Verði og höfum við markvisst unnið að jafnrétti innan félagsins frá því við fengum fyrst jafnlaunavottun árið 2014. Árið 2024 var jafnlaunaúttekt ársins í fyrsta sinn gerð á grunni samstæðu Arion og sýndu niðurstöður að launamunur mælist 0,4%. Til viðbótar við árlega jafnlaunaúttekt framkvæmum við mánaðarlegar jafnlaunagreiningar. Við höfum einsett okkur að vera til fyrirmyndar í jafnréttismálum í íslensku atvinnulífi.
Við leggjum áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti í öllum okkar störfum þannig að allir fái notið sín. Á árinu innleiddum við nýja hugbúnaðarlausn í þeim tilgangi að styðja við inngildandi vinnustaðamenningu sem hjálpar okkur betur að viðurkenna og stuðla að fjölbreytileika. Við mælum svo reglulega upplifun starfsfólks af vinnustaðamenningunni og hversu inngildandi vinnustaðurinn er. Þannig tryggjum við að menningin þróist í rétta átt svo allir upplifi sig metna og sem hluta af heildinni.