Mottumars og Bleikur október eru ekki bara mánuðir í dagatalinu – þeir minna okkur á mikilvægi forvarna og stuðnings í baráttunni gegn krabbameini. Þessa mánuði beinum við sjónum okkar sérstaklega að heilsuforvörnum og því hversu dýr
mæt líf- og sjúkdómatryggingar geta verið þegar lífið tekur óvæntar stefnu.
Með skýrum skilaboðum í auglýsingaherferðum okkar í báðum mánuðunum minnum við á að veikindi banka ekki upp á með fyrirvara. Við hvetjum alla til að setja heilsuna í forgang og tryggja sér og sínum bestu mögulegu vernd. Til að auka vitund og fræðslu höldum við einnig fræðsluerindi fyrir starfsfólk okkar, þar sem farið er yfir nýjustu greiningaraðferðir og mikilvægi sjúkdómatrygginga.
Og auðvitað klæðum við okkur í bleikt í október og skellum okkur í Mottumarssokkana í mars – því saman erum við sterkari í þessari baráttu!
Vörður tryggingar
07. apríl 2025