Stöndum með viðskiptavinum okkar

07. apríl 2025

Reglulega erum við minnt á ægimátt náttúruaflanna og íslenska þjóðin hefur sýnt að hún stendur saman þegar á reynir. Eldgos á Reykjanesi, nálægt Grindavík, hafa verið tíð síðustu ár og í einu slíku í febrúarmánuði í fyrra tók hraunflæðið í sundur hitavatnsleiðslu sem sá íbúum á Suðurnesjum fyrir heitu vatni. Fljótt varð kalt í húsum á svæðinu og gripum við til þess ráðs að safna saman hitablásurum til að lána íbúum Suðurnesja.

Við virkjuðum starfsfólk okkar til þátttöku, skipulögðum innkaup á hitablásurum og lengdum opnunartíma útibúsins okkar á Suðurnesjum. Við auglýstum líka eftir hitablásurum frá almenningi til að lána til þeirra sem á þurftu að halda. Þá settum við okkur í samband við okkar stærstu viðskiptavini, tókum stöðuna með þeim og buðum fram aðstoð. Undir lok þessa örlagaríka dags höfðu um 50 viðskiptavinir komið í útibúið okkar í Krossmóa í Reykjanesbæ og sótt blásara. Með samstilltu átaki lögðum við okkar að mörkum til að létta undir með íbúum Suðurnesja á erfiðum tímum.

author

Vörður tryggingar

07. apríl 2025

Deila Frétt