Við viljum stuðla að hollri hreyfingu og heilbrigðu líferni og þannig styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um heilsu og vellíðan.
Regluleg hreyfing hefur margþættan ávinning fyrir heilsuna, hún minnkar líkur á sjúkdómum, eykur lífsgæði og lengir lífið. Við leggjum líka ríka áherslu á forvarnir og íþróttir hafa fyrir löngu sannað gildi sitt sem öflug forvörn þegar kemur að heilsufars- eða félagslegum þáttum.
Vörður hefur verið bakhjarl knattspyrnudeildar Breiðabliks frá árinu 2010 en samstarfið, sem hefur verið afar farsælt, kveður á um stuðning við meistaraflokka félagsins í efstu deild karla og kvenna. Auk þess styrkir samstarfið öflugt uppeldis- og afreksstarf þessarar stærstu knattspyrnudeildar landsins. Uppskeran hjá Breiðabliki árið 2024 var ríkuleg því félagið hampaði Íslandsmeistaratitlum í Bestu deild karla og kvenna.
Vörður tryggingar
04. apríl 2025