Gerum við brotnar bílrúður

07. apríl 2025

Vissir þú að bílrúðuviðgerðir fela í sér töluverðan umhverfislegan ávinning og geta sparað háar fjárhæðir? Síðustu ár höfum við lagt áherslu á að gera við bílrúður sem skemmst hafa í umferðinni í stað þess að skipta þeim út fyrir nýjar.  

Meðalkostnaður við rúðuskipti er 119.000 krónur, sem er verulegur útgjaldaliður fyrir tryggingafélög og viðskiptavini þeirra. Af 3.584 skráðum tjónum á fólksbílum árið 2024 var rúðuviðgerð framkvæmd í 17,3% tilfella. Þær spöruðu viðskiptavinum okkar um 9 milljónir króna og ávinningurinn fyrir umhverfið var um 37 þúsund kíló minna af koltvísýringi eða CO₂.  

Bílrúðuviðgerðir krefjast nefnilega færri hráefna, minni orkunotkunar og draga úr sóun. Á síðasta ári létum við útbúa rúðulímmiða sem við dreifðum til verkstæða og útibúa um land allt, sem og til viðskiptavina okkar. Ef límmiðinn er settur yfir gat á rúðunni greiðir Vörður allan kostnað af viðgerðinni. 

author

Vörður tryggingar

07. apríl 2025

Deila Frétt