Yfirfærsla ökutækjatrygginga Verna til Varðar

Verna hættir að bjóða upp á tryggingar í lok janúar 2026 og því munu ökutækjatryggingarnar viðskiptavina færast til Varðar 1. febrúar næstkomandi.

Vörður hefur verið vátryggjandi Verna frá 1. október, auk þess að sjá um tjónaþjónustu fyrir félagið. Í lok janúar 2026 mun Verna hætta að bjóða upp á tryggingar. Því munu ökutækjatryggingarnar viðskiptavina Verna færast sjálfkrafa til Varðar 1. febrúar næstkomandi. Þú þarft ekkert að gera – verndin helst óbreytt og á sambærilegum eða betri kjörum.

Á Mínum síðum finnur þú allar upplýsingar um þínar tryggingar, kjör, reikninga og greiðslur á einum stað.

Mínar síður

Spurt og svarað - Yfirfærsla trygginga

Sjá allar spurningar
  • Hvaða breyting er að eiga sér stað?
    • Verna hættir að bjóða upp á tryggingar í lok janúar 2026. Því munu ökutækjatryggingarnar viðskiptavina Verna færast sjálfkrafa til Varðar 1. febrúar.

    • Þú þarft ekkert að gera – tryggingaverndin helst óbreytt og á sambærilegum eða betri kjörum.

    • Frá og með 1. febrúar verður þjónusta vegna ökutækjatrygginga ekki lengur aðgengileg viðskiptavinum í Verna appinu. Allar upplýsingar um þínar tryggingar, kjör, greiðslur og reikninga má þá finna á Mínum síðum.

    Hvaða áhrif hefur breytingin á viðskiptavini Verna?
    • Verna hættir að bjóða upp á tryggingar í lok janúar 2026 og því munu tryggingarnar þínar færast sjálfkrafa til Varðar 1. febrúar.

    • Þú þarft ekkert að gera – verndin helst óbreytt á sambærilegum eða betri kjörum.

    • Frá og með 1. febrúar verður þjónusta vegna ökutækjatrygginga ekki lengur aðgengileg viðskiptavinum í Verna appinu.

    • Á Mínum síðum finnur þú nú allar upplýsingar um þínar tryggingar, kjör og reikninga á einum stað.

    Hvernig er greiðslum háttað eftir yfirfærsluna?
    • Eftir 1. febrúar munu reikningar fyrir ökutækjatryggingar þínar berast frá Verði í stað Verna.

    • Sjálfvalin greiðsluleið er mánaðarleg greiðsla í netbanka. Á Mínum síðum getur þú valið um aðrar greiðsluleiðir.

    • Ef þú ert nú þegar í viðskiptum við Vörð, þá munu ökutækjatryggingar þínar fylgja sömu greiðsluleið og núverandi tryggingar hjá Verði. Á Mínum síðum getur þú valið um aðrar greiðsluleiðir.

    Þarf ég að gera eitthvað vegna breytinganna?
    • Nei, þú þarft ekki að gera neitt. Tryggingarnar þínar flytjast sjálfkrafa yfir til Varðar 1. febrúar 2026.

    • Tryggingavernd þín helst einnig óbreytt og á sambærilegum eða betri kjörum.

    Af hverju eru tryggingarnar mínar að færast yfir til Varðar?
    • Vörður hefur verið vátryggjandi, auk þess að sjá um tjónaþjónustu fyrir Verna frá 1.október 2025. Í lok janúar 2026 mun Verna hætta að bjóða upp á tryggingar. Því munu ökutækjatryggingarnar viðskiptavina Verna færast sjálfkrafa til Varðar 1. febrúar næstkomandi.

    Hvað gerist þangað til að tryggingarnar færast yfir 1.febrúar?
    • Fram til 1. febrúar 2026 getur þú áfram nýtt þér þjónustu Verna með sama hætti og áður.

    Ef ég lendi í tjóni, við hvern á ég að hafa samband?

    Þú getur tilkynnt tjón með einföldum hætti hér á vefnum okkar. Hægt er að hafa samband við tjónasvið Varðar í síma 514-1000 alla virka daga frá kl. 09:00-16:00. Í neyðartilfellum er hægt að hafa samband utan skrifstofutíma við neyðarvakt í síma 514-1099.

    • Tilkynntu tjón sem fyrst inni á Mínum síðum.

    • Góð lýsing og ítarlegar upplýsingar í tilkynningu flýta fyrir afgreiðslu málsins.

    • Ef slys er á fólki skal ávallt tilkynna það til okkar.

    • Árekstur.is - Aðstoð og Öryggi ehf. - 578-9090 veita aðstoð við tjónaskýrslu, myndatöku á vettvangi og senda skýrslu á tryggingafélög.

  • Heldur Vörður áfram að nota ökuskor til að ákvarða kjör?
    • Nei, þar sem Vörður notar ekki ökurita verður ökuskor í Verna-appinu ekki lengur virkt og hefur því ekki áhrif á verð ökutækjatrygginga þinna.

    • Iðgjöld Varðar ráðast af nokkrum þáttum. Ef þú ert með fleiri tryggingar hjá Verði getur það til dæmis haft áhrif til lækkunar á iðgjöldum.

    Hvað gerist ef ég aðhefst ekkert vegna yfirfærslunnar?
    • Ef þú gerir ekkert flytjast tryggingarnar þínar sjálfkrafa yfir til Varðar 1. febrúar næstkomandi og bíllinn þinn verður framvegis tryggður hjá Verði.

    Breytast iðgjöldin mín þegar ég flytst yfir til Varðar?
    • Eftir yfirfærsluna verður þú með sambærileg eða betri kjör en áður.

    • Á Mínum síðum finnur þú allar upplýsingar um þínar tryggingar og kjör á einum stað.

    Hvað ef að ég vil ekki að tryggingar mínar flytjist yfir til Varðar?
    • Ef þú kýst að flytja tryggingarnar þínar til annars tryggingafélags en Varðar, þá þarftu að hafa samband við það félag.

    • Það tryggingafélag mun síðan sjá um að láta okkur vita að þú hafir flutt viðskiptin þín annað.

    Breytast skilmálar ökutækjatryggingarinnar við yfirfærsluna?
    • Nei, skilmálar haldast óbreyttir. Þú þarft því ekki að hafa neinar áhyggjur af samningnum þínum. Ef munur er á skilmálum Varðar og Verna gildir sú tryggingavernd sem er betri.

    • Hér getur þú séð skilmála Verna.

    • Hér getur þú séð skilmála Varðar.

    Er ég strax komin/n yfir til Varðar?
    • Nei, tryggingarnar þínar flytjast yfir til Varðar 1. febrúar 2026. Fram að þeim tíma ertu áfram tryggður hjá Verna.

    Hvað gerist ef ég er nú þegar með opið tjónamál hjá Verna?
    • Ef tjónið varð fyrir 1. október 2025 þá sér fyrrum vátryggjandi Verna, TM, um að veita allar frekari upplýsingar og lýkur því máli að fullu.

    • Ef tjónið varð 1. óktóber 2025 eða síðar þá sér Vörður um alla upplýsingagjöf og úrvinnslu málsins.

Spurt og svarað - Viðbrögð við ökutækjatjóni

Sjá allar spurningar
  • Hver eru fyrstu viðbrögð við tjóni?
    • Athugaðu hvort að slys hafi orðið á fólki, ef svo er skaltu hringja strax 112.

    • Kveiktu á viðvörunarljósum og hugaðu að öryggi á slysstað.

    • Áður en ökutæki eru færð er gott að taka myndir af aðstæðum.

    • Árekstur.is og Aðstoð og Öryggi ehf. s. 5789090, veita aðstoð við tjónaskýrslu, myndatöku á vettvangi og senda skýrslu á tryggingafélög.

    Hvenær á ég að hringja í 112?
    • Ef slys verða á fólki.

    • Ef ökutæki er það skemmt að ekki er hægt að aka því, eða það skapar hættu fyrir aðra.

    • Ef grunur leikur á að umferðalög hafi verið brotin, sbr. hraðakstur, ölvunarakstur eða ef öðrum ákvæðum umferðalaga er ekki framfylgt.

    Fæ ég bílaleigubíl á meðan viðgerð stendur?

    Kaskótjón

    • Þau sem eru með kaskótryggingu eiga rétt á bílaleigubíl í minnsta bílaflokki í allt að sjö daga án endurgjalds. Ef þú þarft bílaleigubíl lengur en það tryggir viðskiptasamband þitt við Verna þér afslátt hjá Bílaleigu Akureyrar (Höldur).

    • Þú getur óskað eftir bílaleigubíl hjá verkstæðinu sem gerir við bílinn. Það er líka hægt að hafa samband við Bílaleigu Akureyrar (Höldur) og þeir geta útvegað þér bíl. Í þeim tilfellum verður þú að sækja hann hjá bílaleigunni og skila til baka á sama stað.

    Ábyrgðartjón

    • Ef þú átt bótaskylt ábyrgðartjón hjá Verna átt þú rétt bílaleigubíl í minnsta bílaflokki í allt að 14 daga eða það sem telst eðlilegur vinnslutími mála.

    • Þú getur óskað eftir bílaleigubíl hjá verkstæðinu sem gerir við bílinn. Það er líka hægt að hafa samband við Bílaleigu Akureyrar (Höldur) og þeir geta útvegað þér bíl. Í þeim tilfellum verður þú að sækja hann hjá bílaleigunni og skila til baka á sama stað.

    Hvernig virka samkomulagsbætur?
    • Ef þú vilt fá greiddar samkomulagsbætur læturðu meta tjónið á viðurkenndu verkstæði og tekur fram að þú óskir eftir bótum í stað viðgerðar. Þetta er gert svo varahlutir séu ekki pantaðir.

    • Því næst sendirðu tölvupóst á [email protected], óskar eftir samkomulagsbótum og lætur reikningsnúmer fylgja með.

    • Ef um kaskótjón er að ræða eru ekki greiddar samkomulagsbætur.

    Hvað geri ég ef ökutækið er óökufært?
    • Ef það þurfti að draga ökutækið af tjónsstað munum við hafa samband við þig varðandi næstu skref. Ef þú heyrir ekki í okk­ur skaltu endi­lega senda skilaboð í gegnum net­spjallið, eða hringja í síma 514-1177 og við aðstoð­um þig.

    • Tjóna­mat þarf að fara fram á við­ur­kenndu verk­stæði. Ef það er mögulegt að gera við ökutækið veitum við verkstæð­inu samþykki og þú færð tíma í við­gerð.

    • Ef viðgerð borgar sig ekki mun­um við hafa sam­band við þig varð­andi kaup á öku­tæk­inu.

  • Hversu há er eigin áhætta?
    • Eigin áhætta í ábyrgðatjónum sem fara yfir 180 þúsund er 29.000 kr.

    • Í kaskótjónum er eigin áhætta 139 þúsund.

    • Í rúðutjónum þá er eigin áhætta 20%, en ef hægt er að gera við rúðuna þá er engin eigin áhætta.

    Hvað get ég gert ef ég er ósammála niðurstöðu í tjónum?
    • Málið er sent fyrst fyrir tjónanefnd, sem er nefnd á vegum SFF. þar sem fullrúar tryggingafélag sitja. Nefndin tekur einungis á málum sem tengjast ákvörðun á bótaskyldu úr lögboðnu tryggingunum, ekki kaskó.

    • Verna sér um að vísa málinu til Tjónanefndar, óskir þú eftir því, og tilkynnir þér niðurstöðu nefndarinnar þegar hún liggur fyrir. Málsmeðferðin tekur að jafnaði eina viku og er endurgjaldslaus.

    • Þú getur einnig skotið niðurstöðu Tjónanefndar til Úrskurðanefndar. Úrskurðanefnd tekur á málum sem snúa að ágreining um bótaskyldu, þar með talið sök og sakarskiptingu milli neytenda og vátryggingafélags. Nefndin fjallar vanalega ekki um bótafjárhæð nema að bæði tjónþoli og vátryggingafélagið hafi óskað eftir því.

    • Ef þú vilt vísa máli til Úrskurðanefndar fyllir þú út eyðublað og sendir til nefndarinnar. Málskostnaður er á bilinu 10.000 kr. til 25.000 kr. Nánari upplýsingar má finna hér.

    Hvað geri ég ef bílrúða skemmist?
    • Ef skemmdin er minni en 100 krónu peningur og ekki í sjónlínu ökumanns eru góðar líkur á að hægt sé að gera við rúðuna.

    • Þurrkaðu yfir skemmdina og settu bílrúðulímmiða yfir brotið. Farðu svo eins fljótt og mögulegt er á næsta viðurkennda bílrúðuverkstæði.

    • Ef það er hægt að gera við rúðuna greiðir Vörður allan kostnað af viðgerðinni. Sem þýðir engin eigin áhætta og ekkert úr þínum vasa.

    Hversu há er eigin áhætta þegar kemur að bílrúðutjóni?
    • Eigin áhættan í rúðuskiptum er 20% af heildartjóni.

    • Engin eigin áhætta er á rúðuviðgerðum

    Get ég farið á hvaða verkstæði sem er?
    • Hér er vefslóð sem tekur þig á síðu Varðar sem inniheldur upplýsingar um verkstæði. Meðfylgjandi listi er yfir viðurkennd verkstæði, bílrúðuverkstæði og bílaleigur.

Fáðu tilboð í þínar tryggingar

Vörður býður heildstætt úrval trygginga fyrir einstaklinga og fyrirtæki og erum hér til að hjálpa þér að finna lausn sem hentar þínum þörfum – hafðu samband og fáðu tilboð sem hentar þér.

Fá tilboð