Ökutækjatrygging
Ökutækjatrygging samanstendur af ábyrgðartryggingu, slysatryggingu ökumanns og eiganda og bílrúðutryggingu.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Ökutækjatrygging samanstendur af ábyrgðartryggingu, slysatryggingu ökumanns og eiganda og bílrúðutryggingu.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur meira skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.

Margir kannast við að hafa fengið stein í framrúðuna á bílnum sínum. Ef viðgerð á rúðunni er möguleg greiðir Vörður viðgerðina að fullu og þú sparar þér eigin áhættu.
Við bjóðum skjóta og góða þjónustu og hagstæð kjör þegar þú kaupir nýjan eða notaðan bíl. Hægt er að fjármagna allt að 80% af kaupverði bifreiðar og fer lánstími eftir aldri bifreiðar.

Tjón sem stafar af notkun ökutækis, hvort sem keyrt er á bíl eða mannvirki.
Ökutæki er tryggt þó annar en eigandi keyri. Ökumaður þarf þó að hafa gilt ökuskírteini og notkunin að vera með leyfi eiganda.
Slys á fólki af völdum ökutækis.
Ef eigandi keyrir á annað ökutæki í sinni eigu.
Nær til aksturs erlendis, innan EES og Sviss. Nauðsynlegt að eigandi sæki græna kortið (alþjóðlegt vátryggingakort) til Varðar áður en haldið er af stað.
Tjón á vátryggðu ökutæki eiganda, munum eða húsnæði í hans eigu.
Eigin verðmæti ökumanns í bílnum.
Tjón sem verður við kappakstur eða aksturskeppni, né við æfingar við slíkan akstur.
Tjón sem valdið er af stórkostlegu gáleysi eða ásetningi.
Ef ökumaður er óhæfur til aksturs vegna ölvunar eða deyfilyfja, getur Vörður átt endurkröfurétt á eiganda.
Líkamstjón vegna umferðarslyss sem ökumaður verður fyrir við stjórn ökutækis.
Líkamstjón vegna umferðarslyss sem eigandi verður fyrir sem farþegi í eigin bíl.
Tryggingin er valkvæð fyrir torfærutæki, en ekki er bætt fyrir líkamstjón á þau tæki nema varanlegur miski nái að lágmarki 15 stigum. Hámarksbætur eru 40 m.kr. á tryggingartímabili þegar trygging er valkvæð.
Tjón sem verður við kappakstur eða aksturskeppni, né við æfingar við slíkan akstur.
Tjón sem valdið er af stórkostlegu gáleysi eða ásetningi.
Ef ökumaður er óhæfur til aksturs vegna ölvunar eða deyfilyfja, getur Vörður átt endurkröfurétt á eiganda.
Brot á bílrúðu ásamt ísetningarkostnaði.
Eigin áhætta í rúðutryggingu er 25% í hverju tjóni ef skipt er um rúðu.
Tjón sem verður við kappakstur eða aksturskeppni, né við æfingar við slíkan akstur.
Tjón sem valdið er af stórkostlegu gáleysi eða ásetningi.
Ef ökumaður er óhæfur til aksturs vegna ölvunar eða deyfilyfja, getur Vörður átt endurkröfurétt á eiganda.
Ökutækjatrygging er samsett af ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda. Ábyrgðartrygging bætir tjón á mönnum og munum sem ökutækið veldur. Slysatrygging bætir tjón vegna slyss ökumanns, sem veldur tjóni og einnig slysatjón eiganda ökutækis ef hann slasast sem farþegi í eigin ökutæki.
Skráningarskylt ökutæki er bifreið, bifhjól, torfærutæki, dráttarvél, eftirvagn bifreiðar eða dráttarvélar sem gerður er fyrir meira en 750 kg heildarþyngd, hjólhýsi og tjaldvagn. Skylt er að skrá ökutæki áður en það er tekið í notkun.
Kaskótrygging bætir skemmdir á ökutæki komi til tjóns sem eigandi sjálfur ber ábyrgð á eða ef ökutækið verður fyrir utanaðkomandi tjóni. Sá sem kaupir slíka tryggingu hefur val um eigin áhættu og greiðir hana ef bíllinn skemmist og tryggingafélagið borgar það sem eftir stendur.
Þú lætur okkur vita þegar þú hefur afskráð ökutæki og þá er trygging felld frá afskráningardegi, þetta á við um lögboðnar ökutækjatryggingar og frjálsar tryggingar eins og kaskó.
Ef númer eru lögð inn án afskráningar er kaskótrygging ekki sjálfkrafa felld niður, enda bætir trygging allskyns tjón sem geta átt sér stað þrátt fyrir að númer séu innlögð, t.d. skemmdarverk, óveður og þjófnað.
Rúðutrygging bætir brot á bílrúðu ásamt ísetningarkostnaði. Eigin áhætta í rúðutryggingu er 25% í hverju tjóni en sé gert við bílrúðuna í stað þess að skipta henni út er eigin áhætta engin.
Ábyrgðartrygging gildir ekki nema keyptur sé keppnisviðauki. Sá viðauki bætir þóekkitjón sem ökutæki veldur öðrum þátttakendum í aksturskeppni, hvorki líkams- eða munatjónum.
Slysatrygging ökumanns og eiganda, bílrúðutrygging og kaskótrygging gildir aldrei við aksturskeppni.
Tryggingin gildir á Íslandi, í öðrum aðildarríkjum EES, Bretlandi og í Sviss. Skilyrði er að sækja alþjóðlegt vátryggingakort fyrir ökutæki, sem kallast „græna kortið“.