forvarnir

Tími sumardekkja

14. apríl 2021

Nú er tími sumardekkja að renna upp en óheimilt er að aka um á nagladekkjum eftir 15. apríl. Yfirleitt eru ekki gerðar athugasemdir við það þó nagladekk séu undir bílum út aprílmánuð en eftir þann tíma geta ökumenn búist við því að verða stöðvaðir af lögreglu og sektaðir fyrir notkun negldra hjólbarða. Því fyrr sem nagladekkin fara undan bílnum því betra, því þau auka kostnað á viðhaldi gatna. Nagladekk slíta malbiki margfalt hraðar en önnur dekk, þau auka eldsneytiskostnað, eru hljóðmengandi og draga úr loftgæðum með mengun. Því er ráð að panta tíma á hjólbarðaverkstæði og láta fagmenn skipta út nagladekkjum fyrir sumardekk.

Hjólbarðar eru einn stærsti öryggisþáttur bílsins og geta skipt sköpum þegar á reynir. Dekk mynda einu snertingu bílsins við veginn og því er afar mikilvægt að þau séu alltaf í góðu lagi. Stöðugleiki bíls og hemlunarvegalengd hans ræðst til dæmis að stóru leyti af þeim. Ökumenn þurfa því að huga vel að sumardekkjum sínum, að þau séu í lagi og ef ekki þá að fjárfesta í nýjum.

Gott er að hafa eftirfarandi í huga:

  • Aldur og slit Á flestöllum dekkjum er lítill rammi sem segir til um viku árs og ár þegar dekkið var framleitt. Gömul dekk en óslitin geti verið jafn hættuleg og slitin dekk.

  • Mynstursdýpt Mynstur sumardekkja á að vera a.m.k. 1,6 mm djúpt. Mynstursdýpt nýrra dekkja er yfirleitt a.m.k. 9 mm. Slit dekkja minnkar veggrip þeirra og þar með öryggi.

  • Dekk sömu gerðar Dekk undir bifreið sem er 3.500 kíló eða minna að leyfðri heildarþyngd eiga öll að vera sömu gerðar.

  • Loftþrýstingur Sé loftþrýstingur of mikill eða of lítill minnkar snertiflötur dekkjanna og um leið veggrip þeirra. Réttan þrýsting má finna í handbók bílsins eða inn í hurðarstaf bílstjóramegin eða bensínloki.

  • Jafnvægisstilling Mikilvægt er að dekk séu rétt jafnvægisstillt en dekk í ójafnvægi hafa veruleg áhrif á aksturshæfni bíls og eldsneytiseyðslu.

  • Hrein dekk Þvoðu dekkin með dekkja- eða tjöruhreinsi. Hrein dekk grípa betur.

Ef kaupa þarf ný sumardekk borgar sig að vanda valið vel og mikilvægt að hafa í huga að margir þættir skipta máli í gæðum dekkja, s.s. viðnám, hávaði og grip í bleytu. Seljendum hjólbarða er skylt að hafa þá merkta með upplýsingum um samræmdar gæðaprófanir. Þannig er hægt að gera áreiðanlegan samanburð á gæðum og öryggi dekkja.

Hugum að öryggi okkar og annarra í umferðinni og ökum alltaf á góðum dekkjum.

author

Vörður tryggingar

14. apríl 2021

Deila Frétt