Án ferðatrygginga gæti óhapp á ferðalagi sett strik í reikninginn en til að vernda korthafa fyrir slíkum fjárhagslegum skakkaföllum eru ferðatryggingar innifaldar í kreditkortum Landsbankans.
Vörður gefur út ferðatryggingar fyrir kreditkorthafa Landsbankans. Mikilvægt er að kynna sér þær tryggingar sem fylgja kortunum áður en lagt er af stað í ferðalag.