Barnatryggingar
Barnatrygging er góð viðbót við líf- og sjúkdómatrygginguna þína og tryggir börnin okkar fyrir áföllum vegna slysa og veikinda.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Barnatrygging er góð viðbót við líf- og sjúkdómatrygginguna þína og tryggir börnin okkar fyrir áföllum vegna slysa og veikinda.

Barnatryggingar tryggja börnin okkar fyrir hugsanlegum áföllum vegna slysa og veikinda sem geta haft áhrif á heilsu þeirra og framtíð.
Barnatrygging sem veitir fjölskyldum fjárhagslegan stuðning ef barn veikist eða slasast.
Barnatrygging án heilsufarsskoðunar sem veitir fjölskyldum fjárhagslegan stuðning ef barn veikist eða slasast.

Fyrst þú ert að kynna þér líf- og heilsutryggingar þá gætir þú jafnframt haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.
Barnatrygging veitir víðtæka fjárhagslega vernd fyrir börnin okkar vegna slysa eða sjúkdóma sem þau kunna að verða fyrir og geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir heilsu þeirra.
Barnatryggingar eru góð viðbót við líf- og sjúkdómatryggingu og fjölskyldutryggingu. Sjúkdómatrygging tryggir börn að helmingi bótafjárhæð foreldis, þó að hámarki 10 milljónir króna, komi til sjúkdóms sem tryggingin tekur til og líftrygging greiðir dánarbætur 750.000 krónur.
Barnatryggingin er fyrst og fremst örorkutrygging vegna sjúkdóma eða slysa en einnig fjárhagslegur stuðningur við foreldra. Tryggingin tekur líka til sjúkdóma sem eru ekki hluti af sjúkdómatryggingu foreldra, líkt og sykursýki 1, ásamt því að greiða sálfræðiþjónustu vegna áfalla.
Tryggingin gildir á Norðurlöndunum. Þó gildir tryggingin í allt að eitt ár ef vátryggður flytur frá Norðurlöndunum.
Iðgjald tryggingarinnar stjórnast af þeirri tryggingarfjárhæð sem þú velur.
Þegar tryggingarfjárhæð er valin er mikilvægt að hafa í huga, að ef barn verður öryrki, greiðast einungis lágmarksörorkubætur frá Tryggingastofnun frá 18 ára aldri, en þær duga skammt til heimilisreksturs og sjálfstæðrar framfærslu.
Námsmenn njóta ekki örorkuverndar í námi og réttur til örorkulífeyris í lífeyrissjóðum stofnast fyrst þegar lífeyrisiðgjöld hafa verið greidd í tvö ár. Barnatryggingin brúar þetta bil, greiðir örorkubætur og sér til þess að viðkomandi geti séð sjálfum sér farborða, komi til örorku.
Í flestum tilvikum ná tryggingar sveitarfélaga aðeins til sjúkraflutninga og fyrstu aðgerða á slysadeild. Þær ná ekki yfir varanlegar afleiðingar slysa, örorku af völdum slysa eða sjúkdóma og alls ekki til yngstu barna sem enn eru heima.