Vörður gefur út ferðatryggingar fyrir kreditkorthafa Arion banka. Mikilvægt er að kynna sér þær tryggingar sem fylgja kortunum áður en lagt er af stað í ferðalag.
Tryggir korthafa fyrir slysum á ferðalagi.
Bætir sjúkrakostnað sem fellur til á ferðalagi.
Bætir nauðsynleg viðbótarútgjöld heimferðar vegna alvarlegra atvika.
Bætir fyrirframgreiddan ferðakostnað sem ekki fæst endurgreiddur.
Bætir nauðsynlegan ferðakostnað náins ættingja.
Hlutfallsleg endurgreiðsla af óafturkræfum ferðakostnaði.
Greiðir dagpeninga vegna innlagnar sjúkrahúsi erlendis.
Greiðir bætur vegna tafar á ferð á leið á flugvöll.
Greiðir bætur þegar vátryggðum er hafnað sæti um borð vegna yfirbókunar.
Greiðir bætur vegna ferðatafar og mannráns erlendis.
Bætir tjón á einkamunum sem greitt hefur verið fyrir með Premia greiðslukorti.
Bætir tjóni á farangri á ferðalagi.
Bætir tjón sem vátryggður kann að valda þriðja aðila.
Bætir tjón sem verður á bílaleigubíl.
Veitir tryggingavernd fyrir óhöppum, slysum, þjófnaði á búnaði og fleira.
Upptalning er ekki tæmandi. Sjá nánar skilmála tryggingar.
Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.