Árs- og samfélagsskýrsla

Aðalfundir Varðar voru haldnir 8. mars 2023 og hér má finna fjárhagslegar og ófjárhagslegar upplýsingar í tengslum við ársuppgjör félagsins.

Ávarp forstjóra

Almenn starfsemi Varðar gekk vel á síðasta ári en rekstrarniðurstaðan er vonbrigði. Neikvæð afkoma af fjármálastarfsemi félagsins skýrir að langmestu leyti þá staðreynd að tap varð á rekstri Varðar í fyrsta skipti frá árinu 2008. Þá jókst tjónakostnaður um 26% sem er óvanaleg hækkun milli ára. Afkoma síðasta árs er því lituð af ytri aðstæðum sem erfitt var að sjá fyrir. Þrátt fyrir tímabundinn mótbyr er framtíðin björt. Grunnur félagsins er góður, fjárhagur traustur og ímynd og staða á markaði jákvæði. Viðskiptavinum fjölgar ár frá ári og framundan eru ótal tækifæri til að láta félagið vaxa og dafna. Með traustan bakhjarl eins og Arion banka, sem er tilbúinn að styðja við félagið og efla, eru spennandi tímar framundan. Starfsfólk félagsins fær stórt hrós fyrir framúrskarandi gott starf.