Örorkutrygging

Upplýsingaskjal þetta tilgreinir einungis helstu atriði tryggingarinnar, s.s. hvað er innifalið og hvað ekki. Ekki er um að ræða tæmandi upptalningu né persónulegt yfirlit yfir tryggingar sem viðskiptavinir velja. Upplýsingaskjalið hefur ekki lagalega þýðingu og gegnir eingöngu þeim tilgangi að upplýsa viðskiptavini um helstu þætti tryggingarinnar. Tryggingayfirlit og nákvæmar upplýsingar um samningsskilmála sem gilda eru aðgengilegar á vátryggingarskírteini tryggingarinnar sem hægt er að nálgast á Mínum síðum Varðar. Skilmálar tryggingarinnar hafa að geyma tæmandi upplýsingar um vátryggingarverndina og eru hluti af samningi aðila ásamt vátryggingarskírteini. 

Hvernig trygging er Örorkutrygging?

Örorkutrygging er tengd viðbótarlífeyrissparnaði og er í boði fyrir sjóðsfélaga í lífeyrisauka hjá Arion banka. Með henni er hægt að tryggja að markmið um tekjur að loknu ævistarfi náist þrátt fyrir hugsanlegt tekjutap sökum óvæntrar örorku vegna slysa eða sjúkdóma. Séreignarsparnaðurinn er því tryggður frá upphafi þó að starfsævin endist ekki til að safna þeim sjóði sem að er stefnt. Iðgjöldin eru tekin beint af sparnaðinum og hafa því ekki áhrif á útgjöld heimilisins. Að sama skapi eru bætur greiddar beint inn á séreignasjóðinn. 

Tryggingin bætir

Varanlega læknisfræðilega örorku af völdum sjúkdóms, ef örorka er metin 50% eða meiri.

Varanlega læknisfræðilega örorku af völdum slyss, ef örorka er metin 25% eða meiri.

Tryggingin bætir ekki

Afleiðingar sjúkdóms eða meins sem hefur komið fram (þ.e. einkenni eða greining) fyrir gildistöku vátryggingarinnar og vátryggður veit eða mátti vita um við undirritun vátryggingasamnings eða eftir að vátryggingin féll úr gildi.

Afleiðingar slyss sem rekja má til atburðar sem vátryggður veit eða mátti vita um og átti sér stað fyrir undirritun vátryggingasamnings eða eftir að vátryggingin féll úr gildi.

Slys sem vátryggður verður fyrir í handalögmáli, við þátttöku í refsiverðum verknaði, undir áhrifum deyfi- og/eða fíkniefna eða í ölæði, nema sannað sé að ekkert samband hafi verið milli ástands þessa og slyssins.

Slys sem verða við fjallaklifur, bjargsig, hnefaleika, glímu- og bardagaíþróttir, akstursíþróttir, fallhlífarstökk, froskköfun og teygjustökk.

Slys eða sjúkdóma sem verða vegna meðvitaðrar háttsemi, ásetnings eða stórkostlegs gáleysis vátryggðs.

Sjúkdóma eða slysa sem orsakast af neyslu áfengis, eitur-, deyfi- og nautnalyfja.

Eru einhverjar takmarkanir eða varúðarreglur?

Vátryggðum ber að fylgja varúðarreglum Varðar.

Vátryggðum ber að kynna sér skilmála tryggingarinnar.

Tryggingin fellur niður við greiðslu bóta.

Tryggingin fellur niður ef hópvátryggingarsamningur Varðar og Arion banka fellur úr gildi.

Tryggingin fellur niður ef heildarinngreiðslur vátryggðs í séreignarsjóð á síðustu 24 mánuðum eru lægri en sem nemur næsta ársiðgjaldi vátryggingarinnar.

Hvar gildir tryggingin?

Tryggingin gildir hvar sem er í heiminum. Nánari upplýsingar um gildissvið má finna í skilmála tryggingarinnar.

Hverjar eru helstu skyldur þess tryggða?

Svara öllum spurningum Varðar vegna áhættumats rétt og af heiðarleika.

Veita allar nauðsynlegar upplýsingar, hvort sem er við endurnýjun, breytingar á tryggingunni eða við tjónstilkynningu.

Tilkynna um tjón við fyrsta hentugleika og eigi síðar en innan árs frá tjónsatburði.

Hvenær og hvernig er greitt fyrir trygginguna?

Iðgjöld tryggingarinnar eru tekin beint af viðbótarlífeyrissparnaði og hafa því ekki áhrif á útgjöld heimilisins.

Hvenær hefst tryggingarverndin og hvernig lýkur henni?

Tryggingarsamningar gilda almennt í 12 mánuði frá samþykkt tilboðs og útgáfu tryggingar og miðast iðgjöld við ársiðgjald. Sé tryggingu ekki sagt upp á því tímabili framlengist hún sjálfkrafa.

Hvernig er tryggingunni sagt upp?

Viðskiptavinir geta sagt tryggingunni skriflega upp hvenær sem er á vátryggingartímabilinu. Iðgjald skal greitt fyrir það tímabil sem félagið er í ábyrgð samkvæmt vátryggingunni.