Upplýsingaskjal þetta tilgreinir einungis helstu atriði tryggingarinnar, s.s. hvað er innifalið og hvað ekki. Ekki er um að ræða tæmandi upptalningu né persónulegt yfirlit yfir tryggingar sem viðskiptavinir velja. Upplýsingaskjalið hefur ekki lagalega þýðingu og gegnir eingöngu þeim tilgangi að upplýsa viðskiptavini um helstu þætti tryggingarinnar. Tryggingayfirlit og nákvæmar upplýsingar um samningsskilmála sem gilda eru aðgengilegar á vátryggingarskírteini tryggingarinnar sem hægt er að nálgast á Mínum síðum Varðar. Skilmálar tryggingarinnar hafa að geyma tæmandi upplýsingar um vátryggingarverndina og eru hluti af samningi aðila ásamt vátryggingarskírteini.
Starfsábyrgðartryggingar hafa þann tilgang að bæta almennt fjártjón sem vátryggður kann að valda viðskiptavinum sínum við störf sín. Lögmönnum er skylt að kaupa og viðhalda starfsábyrgðartryggingu samkvæmt lögum um lögmenn.
Fjártjón sem stjórnendur og starfsmenn bílaleigu hafa bakað leigutökum vegna vanefndar á samningi, sem gerður hefur verið um leigu á bifreið eða öðru skráningarskyldu vélknúnu ökutæki. Eingöngu beint fjárhagslegt tjón er bætt úr vátryggingunni.
Tjón sem rekja má til þess að vátryggður tekur á sig ábyrgð eða gefur loforð sem er víðtækara en bótaskylda almennt samkvæmt leigusamningi um bifreið eða annað skráningarskylt vélknúið ökutæki.
Sektir sem falla á vátryggðan eða þriðja mann.
Líkamstjón og skemmdir á munum.
Starfsemi vátryggðs utan Evrópska efnahagssvæðisins eða bótaábyrgðar sem er ríkari en eftir íslenskum reglum um skaðabótagrundvöll eða ákvörðun bótafjárhæðar.
Vátryggðum ber að fylgja varúðarreglum Varðar.
Vátryggingin gildir hvar sem er innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Veita allar nauðsynlegar upplýsingar, hvort sem er við endurnýjun, breytingar á tryggingunni eða við tjónstilkynningu.
Jafnskjótt og vátryggður fær vitneskju eða grun um að skaðabótakrafa verði gerð á hendur honum ber honum að tilkynna félaginu það skriflega.
Verði breytingar á atvikum eða upplýsingum, sem félaginu hefur verið skýrt frá í vátryggingarbeiðni, eða á annan hátt, skal vátryggingartaki tilkynna félaginu um þær.
Iðgjöld tryggingarinnar ber að greiða á gjalddaga. Við endurnýjun hækkar ársiðgjaldið í samræmi við breytingu á vísitölu frá grunnvísitölu samnings. Vörður sendir kröfur mánaðarlega í heimabanka eða árlega ef óskað er eftir því að greiða iðgjöld í einu lagi. Hægt er að breyta greiðslumáta á Mínum síðum Varðar. Þar er einnig hægt að velja að greiða iðgjöld með kreditkorti.
Tryggingarsamningar gilda almennt í 12 mánuði frá samþykkt tilboðs og útgáfu tryggingar og miðast iðgjöld við ársiðgjald. Sé tryggingu ekki sagt upp á því tímabili framlengist hún sjálfkrafa.
Hægt er að segja tryggingunni upp hvenær sem er á tryggingartímabilinu.