

Upplýsingaskjal þetta tilgreinir einungis helstu atriði tryggingarinnar, s.s. hvað er innifalið og hvað ekki. Ekki er um að ræða tæmandi upptalningu né persónulegt yfirlit yfir tryggingar sem viðskiptavinir velja. Upplýsingaskjalið hefur ekki lagalega þýðingu og gegnir eingöngu þeim tilgangi að upplýsa viðskiptavini um helstu þætti tryggingarinnar. Tryggingayfirlit og nákvæmar upplýsingar um samningsskilmála sem gilda eru aðgengilegar á tryggingarskírteini tryggingarinnar sem hægt er að nálgast á Mínum síðum Varðar. Skilmálar tryggingarinnar hafa að geyma tæmandi upplýsingar um tryggingarverndina og eru hluti af samningi aðila ásamt tryggingarskírteini.
Tryggingin bætir miðaverð á viðburð að fullu ef miðahafi kemst ekki á viðburðinn vegna þeirra bótaþátta sem tilgreindir eru í skilmálanum.
Tryggingin bætir miðaverð vegna:
Andláts, alvarlegt slyss, skyndilegra veikinda, líkamsmeiðsla, heimilisofbeldis, barnsburðar eða sóttkvíar miðahafa, maka hans eða barna.
Andláts, alvarleg slyss, skyndilegra veikinda barnabarna, foreldra, systkina, afa, ömmu tengdaforeldra eða tengdabarna.
Andláts, alvarlegs slyss, skyndilegra veikinda tengdra aðila sem fara með miðahafa á viðburð og eiga gildan miða með viðburðatrygging.
Verulegs eignatjóns á heimili miðahafa eða í fyrirtæki hans.
Skyldiköllunar miðahafa í þjónustu vegna almannahagsmuna eða björgunarstarfa.
Forfalla vegna starfa sem miðahafi getur ekki vikið sér undan að vinna skv. Sóttvarnarlögum.
Kvaða til vitnisburðar fyrir dómi.
Ferðatafar á viðburðardegi vegna óveðurs.
Óvæntrar uppsagnar úr starfi innan 30 daga fyrir viðburð.
Tryggingin bætir ekki miðaverð:
Vegna alvarlegs slyss sem átti sér stað áður en tryggingin var tekin.
Vegna hvers kyns veikinda eða sjúkdóma sem voru fyrir hendi áður en tryggingin var tekin.
Vegna sjúkdóma eða kvilla sem koma upp eftir 36. Viku meðgöngutíma.
Vegna meiðsla sem miðahafi veldur sjálfum sér, stofnar sér í hættu eða fremur sjálfsvíg.
Ef miðahafi kemst ekki á viðburð vegna ákæru, dómsúrskurðar eða annarra lagalegra hindrana.
Vegna faraldurs (epidemic), heimsfaraldurs (pandemic) eða sambærilegra atburða.
Ef tjón verður rakið til ásetnings tryggðs fellur bótaábyrgð félagsins niður. Tjón af völdum stórkostlegs gáleysis getur leitt til takmörkunar eða brottfalls bótaábyrgðar félagsins.
Tryggðum ber að kynna sér skilmála tryggingarinnar.
Tryggingin gildir hvar sem er í heiminum.
Miðahafa er skylt að tilkynna félaginu um eins fljótt og hægt er og láta læknisvottorð fylgja með ef óskað er eftir því.
Miðahafi má ekki framselja réttindi sín án samþykkis félagsins.
Iðgjöld tryggingarinnar ber að greiða samhliða greiðslu fyrir miða á viðburð.
Ábyrgð félagsins gagnvart miðahafa hefst þegar viðburðatrygging er keypt og lýkur þegar viðburður byrjar samkvæmt fyrir fram auglýstum tíma.
Tryggingunni er ekki hægt að segja upp.