Áhafnatrygging skipa

Upplýsingaskjal þetta tilgreinir einungis helstu atriði tryggingarinnar, s.s. hvað er innifalið og hvað ekki. Ekki er um að ræða tæmandi upptalningu né persónulegt yfirlit yfir tryggingar sem viðskiptavinir velja. Upplýsingaskjalið hefur ekki lagalega þýðingu og gegnir eingöngu þeim tilgangi að upplýsa viðskiptavini um helstu þætti tryggingarinnar. Tryggingayfirlit og nákvæmar upplýsingar um samningsskilmála sem gilda eru aðgengilegar á tryggingarskírteini tryggingarinnar sem hægt er að nálgast á Mínum síðum Varðar. Skilmálar tryggingarinnar hafa að geyma tæmandi upplýsingar um tryggingarverndina og eru hluti af samningi aðila ásamt tryggingarskírteini.

Hvernig trygging er áhafnatrygging?

Tryggingin greiðir bætur vegna slysa sem áhöfn verður fyrir um borð í skipi eða bát við vinnu í beinum tengslum við rekstur útgerðar. Til viðbótar er valkvæð slysatrygging í frítíma sem hægt er að velja með og án dagpeninga gegn viðbótariðgjaldi.

Tryggingin nær einnig til farangurs áhafnar og við andlát vegna veikinda eru greiddar bætur til rétthafa.

Bætur greiðast á grundvelli skaðabótalaga nr. 50/1993 ef það leiðir til hærri heildarbóta en skv. 172. gr. siglingalaga nr. 37/1985.

Tryggingin bætir
Slysatrygging

Varanlega læknisfræðilega örorku.

Dagpeninga vegna tímabundinnar óvinnufærni.

Dánarbætur vegna slyss.

Líftrygging

Andlát af völdum veikinda.

Farangurstrygging

Tjón á persónulegum munum áhafnar við sjóslys eða bruna.

Slysatrygging í frítíma (valkvætt)

Varanlega læknisfræðilega örorku.

Dagpeninga vegna tímabundins missis starfsorku.

Dánarbætur vegna slyss.

Tryggingin bætir ekki

Slys af völdum kjarabreytingar, af völdum styrjaldar, uppreisnar eða svipaðra aðgerða.

Slys af völdum hryðjuverka.

Slysa sem verður vegna handalögmála.

Slys sem verða vegna stórkostlegs gáleysis.

Slys sem orsakast af matareitrun.

Slys vegna eitraðra lofttegunda nema það sé skyndilegt og án vilja.

Eru einhverjar takmarkanir eða varúðarreglur?

Ef tjón verður rakið til ásetnings tryggðs fellur bótaábyrgð félagsins niður. Tjón af völdum stórkostlegs gáleysis getur leitt til takmörkunar eða brottfalls bótaábyrgðar félagsins.

Tryggðum ber að fylgja varúðarreglum Varðar.

Tryggðum ber að kynna sér skilmála tryggingarinnar.

Hvar gildir tryggingin?

Tryggingin gildir hvar sem er í heiminum.

Hverjar eru helstu skyldur þess tryggða?

Svara öllum spurningum Varðar vegna áhættumats rétt og af heiðarleika.

Veita allar nauðsynlegar upplýsingar, hvort sem er við endurnýjun eða breytingar á tryggingunni.

Tilkynna tjón við fyrsta hentugleika og eigi síðar en innan árs frá tjónsatburði.

Reyna að afstýra tjóni eða lágmarka það. Tryggðum ber að hlíta fyrirmælum félagins sem beinast að því að takmarka tjónið.

Breyting á starfi tryggingataka/tryggðs skal tilkynna félaginu án tafar.

Hvenær og hvernig er greitt fyrir trygginguna?

Iðgjöld tryggingarinnar ber að greiða á gjalddaga. Við endurnýjun hækkar ársiðgjaldið í samræmi við breytingu á vísitölu frá grunnvísitölu samnings. Vörður sendir kröfur mánaðarlega í heimabanka eða árlega ef óskað er eftir því að greiða iðgjöld í einu lagi. Hægt er að breyta greiðslumáta á Mínum síðum Varðar. Þar er einnig hægt að velja að greiða iðgjöld með kreditkorti.

Hvenær hefst tryggingarverndin og hvernig lýkur henni?

Tryggingarsamningar gilda almennt í 12 mánuði frá samþykkt tilboðs og útgáfu tryggingar og miðast iðgjöld við ársiðgjald. Sé tryggingu ekki sagt upp á því tímabili framlengist hún sjálfkrafa.

Hvernig er tryggingunni sagt upp?

Hægt er að segja tryggingunni upp hvenær sem er á tryggingartímabilinu.