Gull viðskiptakort - Landsbankinn

Upplýsingaskjal þetta tilgreinir einungis helstu atriði tryggingarinnar, s.s. hvað er innifalið og hvað ekki. Ekki er um að ræða tæmandi upptalningu né persónulegt yfirlit yfir tryggingar sem viðskiptavinir velja. Upplýsingaskjalið hefur ekki lagalega þýðingu og gegnir eingöngu þeim tilgangi að upplýsa viðskiptavini um helstu þætti tryggingarinnar. Tryggingayfirlit og nákvæmar upplýsingar um samningsskilmála sem gilda eru aðgengilegar á vátryggingarskírteini tryggingarinnar sem hægt er að nálgast á Mínum síðum Varðar. Skilmálar tryggingarinnar hafa að geyma tæmandi upplýsingar um vátryggingarverndina og eru hluti af samningi aðila ásamt vátryggingarskírteini. 

Hvernig trygging er Gull viðskiptaferðatrygging?

Ferðatrygging Gull viðskiptakorts Landsbankans verndar korthafa fyrir fjárhagslegum skakkaföllum á ferðalögum. Í tryggingunni er innifalin ferðaslysatrygging sem tryggir vátryggða fyrir slysum á ferðalagi, sjúkratrygging, sjúkrahúsdagpeningar, ferðakostnaður annarra aðila, endurgreiðsla ferðar, ferðarofstrygging, farangurs- og innkaupatrygging, farangurstafatrygging, mannránstrygging, forfallatrygging og ábyrgðartrygging. Tryggingin gildir fyrir korthafa sem búsettir eru á Íslandi, en einnig fyrir korthafa sem fer til tímabundinni starfa erlendis. Þá gildir tryggingin fyrir allt að tvo viðskiptavini eða samstarfsfélaga korthafa.

Tryggingin bætir
Sjúkrakostnaður

Sjúkrakostnað á ferðalagi erlendis þ.m.t. læknis- og sérfræðikostnað, sjúkrahúsvist, lyfjakostnað ásamt kostnaði við sjúkraflutning og flutning jarðneskra leifa vátryggðs.

Sjúkrahúsdagpeningar

Dagpeninga í allt að 30 daga ef vátryggður liggur inni á sjúkrahúsi erlendis vegna slyss eða sjúkdóms á ferðalaginu.

Forfallatrygging

Ferðakostnaður sem greiddur er fyrirfram og ekki fæst endurgreiddur ef vátryggður kemst ekki í ferð vegna andláts, líkamsmeiðlsa, veikinda, barnsburðar eða sóttkvíar hins vátryggða enda vottað af starfandi lækni.

Ferðakostnað þegar náinn ættingi eða náinn samstarfsmaður andast eða hlýtur alvarleg líkamsmeðsl eða veikist alvarlega.

Forföll vegna vitnaskyldu fyrir dómi eða forfalla vegna starfa sem vátryggður getur ekki vikið sér undan að vinna skv. lögum um skyldusóttkví eða ef komið er í veg fyrir ferð vegna opinberra hafta er leiða af farsótt.

Ferðatöf og mannrán

Fari svo að verkfallsaðgerðir, óhagstæð veðurskilyrði eða vélarbilun valdi töfum á ferðum almenningsfarartækis og það leiði til seinkunar á komutíma vátryggðs til ákvörðunarstaðar, greiðast bætur.

Dagpeningar greiðast verði vátryggðum rænt á ferðalagi erlendis og haldið í gíslingu.

Ferðaslysatrygging

Varanlega læknisfræðilega örorku vegna slysa sem verða á ferðalagi, þó einungis ef örorka er metin 16% eða hærri.

Dánarbætur vegna slysa sem verða á ferðalagi.

Ferðarofstrygging

Nauðsynleg viðbótarútgjöld vegna heimferðar til dvalarlands ef tryggður neyðist til að stytta dvöl sína erlendis vegna andláts, alvarlegs slyss eða skyndilegra veikinda ættingja vátryggðs.

Nauðsynleg viðbótarútgjöld vegna heimferðar til dvalarlands ef tryggður neyðist til að stytta dvöl sína erlendis vegna verulegs eignatjóns á heimili vátryggðs eða í einkafyrirtæki hans, sem gerir nærveru hans nauðsynlega.

Ferðakostnaður annarra aðila

Nauðsynlegan ferða- og dvalarkostnað vegna ættingja eða vinar vátryggðs, sem dvelst hjá eða fylgir vátryggðum heim samkvæmt læknisráði og í samráði við SOS INTERNATIONAL eða félagið, vegna alvarlegs slyss eða veikinda vátryggðs.

Farangurstafatrygging

Tjón sem verður fái vátryggður farangur sinn ekki afhentan innan 8 klst. eftir að á áfangastað er komið, vegna tafar eða rangrar afgreiðslu. Bætur greiðast til kaupa á nauðsynjum fyrir hvern vátryggðan, þó að hámarki 3 vátryggða vegna hvers tjónsatburðar.

Tjón umfram sjálfsábyrgð vátryggðs.

Farangurs- og innkaupatrygging

Tjón sem verður á einkamunum af völdum bruna, ráns, skemmdarverka eða flutningsslyss, þó er gerð krafa um að vátryggður gæti fyllsta öryggis við vörslu hins vátryggða farangurs.

Endurgreiðsla ferðar

Hlutfallslega óafturkræfan ferðakostnaði, fyrir þann hluta ferðarinnar, sem vátryggður getur ekki notað, vegna þess að hann þarf að fara heim eða þarf að liggja á sjúkrahúsi vegna þess að hann hefur orðið alvarlega veikur eða orðið fyrir alvarlegu slysi.

Skriflegt læknisráð, samþykki félagsins og SOS INTERNATIONAL þarf að liggja fyrir.

Ábyrgðartrygging

Líkamstjón eða tjón eða skemmdir á munum er leiðir af bótaskyldri háttsemi vátryggðs.

Tjóns eða skemmda á munum er leiða af bótaskyldu atferli vátryggðs, athöfn eða athafnaleysi.

Kostnaðar og útgjalda þriðja aðila sem innheimta má hjá vátryggðum annað hvort samkvæmt íslenskum lögum eða lögum þess lands þar sem slysið, tjónið eða skemmdirnar urðu.

Málsvarnarlauna og annars kostnaðar og útgjalda vátryggðs vegna tjóns sem félagið hefur samþykkt að bæta.

Bílaleigutrygging

Tjón sem verður á bílaleigubíl þar sem korthafi er skráður aðalökumaður (1 ökumaður) í eigu viðurkennds bílaleigufyrirtækis vegna eftirfarandi atvika:

a. skemmda á ökutækinu sjálfu og eðlilegum aukahlutum þess af völdum eldingar, eldsvoða, sprenginga, árekstrar, áaksturs, veltu eða útafaksturs.

b. vegna þjófnaðar og skemmdarverka á ökutækinu sjálfu.

Skaðabótakröfur sem kunna að falla á vátryggða, sem nafngreindir er í bílaleigusamningi, ef krafan fer umfram vátryggingarfjárhæð eða sjálfsábyrgð hinnar lögbundnu tryggingar.

Tryggingin bætir ekki
Sjúkrakostnaður

Kostnað sem greiddur er samkvæmt gagnkvæmum samningi um sjúkratryggingu.

Kostnað við meðferð eða eftirmeðferð á Íslandi eða í dvalarlandi.

Kostnað vegna sjúkdóma, veikinda eða slysa sem vátryggður hefur þjáðst af eða notið læknishjálpar og/eða meðferðar á síðustu 6 mánuðum fyrir greiðslu staðfestingargjalds.

Tjón sem rekja má til þess að vátryggður mátti vænta þess að fæða barn áður en heim kæmi eða innan tveggja mánaða frá heimkomudegi eða þegar vátryggður ferðast gegn ráðgjöf starfandi læknis eða í þeim tilgangi að leita læknismeðferðferðar erlendis.

Sjúkrareikninga sem berast eftir að tólf mánuðir eru liðnir frá vátryggingaratburði.

Sjúkrahúsdagpeningar

Fyrstu tvo daganna sem sjúkrahúsvistin varir.

Tjón vegna barna yngri en 16 ára.

Forfallatrygging

Tjón vegna hvers kyns veikinda og sjúkdóma, sem vátryggður þjáðist af og var í meðferð vegna, þegar staðfestingargjald var greitt.

Tjón sem stafar beint eða óbeint af tilskipunum stjórnvalda, vanrækslu aðila er annast flutning, tregðu vátryggðs til að ferðast eða af bágum fjárhag hans, útgjöldum sem ferðaskrifstofu, gistihúsi eða flugfélagi ber að greiða.

Tjón sem stafar beint eða óbeint af breytingu á fyrirhuguðum sumarleyfistíma, aukagjöldum ferðaskrifstofu eða niðurfellingu flugs eða breytingu á áætlun vegna eldgosa.

Tjón sem stafar af því að vanrækt er að tilkynna ferðaskrifstofu eða þeim aðila sem útvegar flutningsfar eða gistingu að nauðsynlegt hafi reynst að fella ferð niður.

Tjón sem hlýst af því að vátryggður hefur ekki skráð sig til brottferðar samkvæmt ferðaáætlun sem honum hefur verið látin í té og breyting á áætlunartíma hefur ekki verið staðfest af flugfélagi eða ferðaskrifstofu.

Tjón sem stafar af því að flugvél eða skip er tekið úr þjónustu til bráðabirgða eða á annan hátt.

Tjón vegna verkfallsaðgerða sem vitað var um þegar staðfestingargjald var greitt, að myndu hefjast fyrir brottför.

Tjón sem stafar af fjárhagserfiðleikum eða gjaldþroti ferðaskrifstofa og annarra slíkra aðila sem annast farþegaflutninga.

Ferðatöf og mannrán

Bætur eru ekki greiddar ef töf stafar af því að vátryggður hafi ákvarðað ferðatíma í tengiflugi þrengri en lágmörk viðkomandi flugfélags/flugvallar kveða á um og athugasemd er gerð um í farbókun.

Ferðaslysatrygging

Bætur greiðast eingöngu leiði slysið til andláts eða varanlegrar örorku innan 24 mánaða frá slysdegi.

Bætur greiðast eingöngu leiði slysið til andláts eða varanlegrar örorku innan 24 mánaða frá slysdegi.

Látist vátryggður 18 ára eða yngri vegna afleiðinga slyss takmarkast bætur við 10% af hámarksfjárhæð dánarbóta.

Örorku og dánarbætur skerðast árlega um 10% eftir að vátryggður nær 60 ára aldri. Þó aldrei meira en 80%.

Ferðarofstrygging

Ónýttan hluta ferðakostnaðar né nýja utanlandsferð í stað þeirrar sem rofin var.

Farangurstafatrygging

Ef töfin stafar af því að vátryggður hafi ákvarðað ferðatíma í tengiflugi þrengri en lágmörk viðkomandi flugfélags/flugvallar kveða á um og athugasemd er gerð um í farbókun.

Farangurs- og innkaupatrygging

Hærri upphæð en 200.000 kr. fyrir einstakan hlut.

Skemmdir vegna vökva, matvæla eða annarra smitandi efna.

Skemmdir sem hljótast af mölflugum, meindýrum, ástandi andrúmslofts, veðráttu eða eðlilegu sliti.

Peninga, farmiða, ferðatékka, ávísanir, skuldabréf né önnur verðbréf.

Brothætta hluti.

Bætur greiðast ekki vegna tafa á farangri þegar vátryggður er á heimleið. Tjónþola ber að framvísa til félagsins skriflegri staðfestingu frá flutningsaðila þar sem tímalengd tafar kemur skýrt fram.

Endurgreiðsla ferðar

Ferð sem varir 5 daga eða skemur.

Kostnað annarra en þess sjúka og þá vátryggðu sem nauðsynlega þurfa að rjúfa ferð og fylgja honum heim.

Kröfur vegna hvers kyns slysa, veikinda og sjúkdóma, sem hinn vátryggði hefur þjáðst af og hefur notið læknishjálpar og/eða meðferðar við, á síðustu 6 mánuðum fyrir greiðslu staðfestingargjalds.

Tjón sem rekja má til þess að vátryggður: a) mátti vænta þess að fæða barn áður en heim kæmi eða innan tveggja mánaða frá heimkomudegi eða b) ferðast í trássi við ráðgjöf starfandi læknis, eða í þeim tilgangi að leita læknismeðferðar erlendis.

Kostnað vegna hvers kyns veikinda eða sjúkdóma sem náinn ættingi eða náinn samstarfsmaður þjáðist af, þegar staðfestingargjald var greitt.

Ábyrgðartrygging

Eignarhaldi, umráð eða notkun vélknúinna farartækja.

Ábyrgð vinnuveitanda, ábyrgð samkvæmt samningum eða ábyrgð gagnvart nánum ættingja vátryggðs.

Ábyrgð á dýrum sem tilheyra vátryggðum, eru í vörslu hans eða umsjá.

Hvers kyns skemmdarverkum, sem unnin eru af ásetningi eða illfýsi.

Ábyrgð sem skapast vegna verslunar, viðskipta eða starfs.

Ábyrgð vegna eignarhalds á landi og byggingum.

Hlutum í eigu þriðja aðila sem skemmast eða týnast á meðan þeir eru í vörslu vátryggðs.

Bílaleigutrygging

Ef tjón er sem verður á bílaleigubíl þar sem ökumaður er yngri 21 árs eða eldri en 74 ára.

Ef vátryggður hefur ekki réttindi til að aka ökutækinu eða hefur misst réttindi til að aka því.

Tjón vegna kappaksturs, aksturskeppni, reynsluaksturs eða æfinga fyrir slíkan akstur.

Akstur þar sem bannað er að aka ökutæki, akstur utan vega t.d. á túnum, engjum, á ís, yfir óbrúaðar ár eða læki eða um aðrar vegleysur.

Notkun ökutækis sem brýtur í bága við skilmála bílaleigusamnings og ákvæði skilmála.

Skemmdir vegna efnisgalla, hönnunargalla, smíðisgalla, viðgerðargalla eða bilunar ökutækisins.

Tjón vegna eðlilegs slits eða ófullnægjandi viðhalds bílaleigubílsins.

Almennar takmarkanir

Beitingu eða notkun hvers kyns kjarnorkuvopna eða kjarnorkubúnaðar sem orsakað getur sprengingu, geislun, losun, dreifingu, sleppingu eða leka kjarnakleyfs efnis sem gefur frá sér geislavirkni og veldur varanlegri örorku eða dauða vátryggðs.

Beitingu eða notkun efnavopna sem orsakað getur losun, dreifingu, sleppingu, eða leka hvers kynefnasambands í föstu formi, fljótandi eða loftkenndu og veldur varanlegri örorku eða dauða vátryggðs.

Beitingu/notkun líffræðilegra vopna, sem orsakar losun, dreifingu, sleppingu eða leka hvers kyns sjúkdómsvaldandi örvera, lífrænt framleiddra eiturefna (að meðtöldum erfðabreyttum lífverum eða óþekktum eiturefnum) sem veldur varanlegri örorku eða dauða.

Stríði, innrás, hernaðarátökum, borgarastríði, uppreisn, byltingu, vopnaðri baráttu gegn stjórnvöldum, borgararóstum sem jafna má við uppreisn, valdatöku hers eða valdarán.

Tjón sem beint eða óbeint leiðir af bifreiða- og vélaíþróttum eða notkun vélhjóla, hvort sem vátryggður er ökumaður eða farþegi.

Tjón vegna slyss sem verður í keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers kyns íþróttum nema um sé að ræða börn yngri en 16 ára.

Tjón sem beint eða óbeint leiðir af flugi, öðru en farþegaflugi gegn gjaldi hjá skráðu flugfélagi með tilskilin leyfi.

Hverjar eru helstu skyldur þess tryggða?

Vátryggðum ber að fylgja varúðarreglum Varðar.

Vátryggður skal loka gluggum og læsa híbýlum og öðrum stöðum þar sem hinir vátryggðu munir eru skildir eftir.

Vátryggður skal ekki skilja við vátryggða muni eftirlitslausa á almannafæri.

Vátryggður skal sjá til þess að hinir vátryggðu munir séu í viðeigandi og fullnægjandi umbúðum til að þola flutning.

Vátryggður skal ávallt læsa ferðatöskum sínum þegar þær eru ekki í umsjá hans.

Hvar gildir tryggingin?

Vátryggingin gildir á Íslandi og á ferðalögum erlendis í allt að 60 samfellda ferðadaga. Nánari upplýsingar um gildissvið má finna í skilmála tryggingarinnar.

Hverjar eru helstu skyldur þess tryggða?

Veita allar nauðsynlegar upplýsingar, hvort sem er við endurnýjun, breytingar á tryggingunni eða við tjónstilkynningu.

Tilkynna skal SOS INTERNATIONAL svo fljótt sem verða má um alvarleg slys eða veikindi vátryggðs á ferðalagi erlendis.

Að gæta fyllsta öryggis við vörslu vátryggðra muna á ferðalagi.

Sjúkrareikningar skulu berast innan tólf mánaða frá vátryggingaratburði.

Tilkynna skal viðkomandi yfirvöldum um þjófnað, rán eða innbrot og fá skýrslu þar um. Tjón skal auk þess ávallt tilkynna fararstjóra, hóteli og bílaleigu.

Tilkynna ber félaginu þegar í stað um slys eða hvers kyns önnur atvik sem kunna að leiða til kröfu á félagið.

Gæta þess vandlega að fyrirbyggja eftir megni slys, meiðsl og sjúkleika.

Hvenær og hvernig er greitt fyrir trygginguna?

Iðgjald tryggingarinnar er innifalið í árgjaldi kortsins. Vátryggður greiðir því ekki sérstakt iðgjald til Varðar.

Hvenær hefst vátryggingarverndin og hvernig lýkur henni?

Vátryggingin gildir út gildistíma kortsins.

Hvernig er tryggingunni sagt upp?

Þar sem Landsbankinn er vátryggingartaki getur vátryggður, þ.e. korthafi, ekki sagt tryggingunni upp með hefðbundnum hætti.