Leigutapstrygging

Upplýsingaskjal þetta tilgreinir einungis helstu atriði tryggingarinnar, s.s. hvað er innifalið og hvað ekki. Ekki er um að ræða tæmandi upptalningu né persónulegt yfirlit yfir tryggingar sem viðskiptavinir velja. Upplýsingaskjalið hefur ekki lagalega þýðingu og gegnir eingöngu þeim tilgangi að upplýsa viðskiptavini um helstu þætti tryggingarinnar. Tryggingayfirlit og nákvæmar upplýsingar um samningsskilmála sem gilda eru aðgengilegar á tryggingarskírteini tryggingarinnar sem hægt er að nálgast á Mínum síðum Varðar. Skilmálar tryggingarinnar hafa að geyma tæmandi upplýsingar um tryggingarverndina og eru hluti af samningi aðila ásamt tryggingarskírteini.

Hvernig trygging er Leigutapstrygging?

Leigutapstrygging er ætluð fyrirtækjum og einstaklingum. Hún er viðbót við bruna- og húseigendatryggingu og bætir leigutapið sem orðið getur kjölfar tjóns sem bótaskylt er úr fyrr nefndum tryggingum.

Tryggingin bætir

Leigutap að hluta eða öllu leyti, sem afleiðing af tjóni á húseign sem er bótaskylt úr brunatryggingu húseigna eða húseigendatryggingu.

Tryggingin bætir ekki

Aukið leigutekjutap sem hlýst af verkbanni, verkfalli, vélarbilun, rekstrartöfum vegna endurbóta, stækkunar, fyrirmæla hins opinbera eða sambærilegra atvika.

Tjón sem bætt er úr annarri tryggingu.

Eru einhverjar takmarkanir eða varúðarreglur?

Tryggðum ber að fylgja varúðarreglum Varðar.

Tryggðum er skylt að hafa samvinnu við félagið um ráðstafanir til að koma í veg fyrir leigutap eða draga úr því.

Tryggðum ber að sjá um að umbúnaður á tryggingarstað sé í fyllsta samræmi við reglur í gildandi lögum og reglugerðum á hverjum tíma, eftir því sem við á.

Tryggðum ber að fara eftir fyrirmælum eða athugasemdum frá opinberum eftirlitsstofnunum svo sem Mannvirkjastofnum og Neytendastofu.

Tryggður skal sjá til þess að tryggðri húseign sé alltaf læst og öllum gluggum lokað.

Í óupphituðu húsnæði skal lokað fyrir vatnsaðstreymi, vatnslagnir ásamt viðfestum tækjum skulu tæmd af vatni þegar hætta er á frosti.

Tryggðum ber, að svo miklu leyti sem það er á hans valdi, að hafa niðurföll í lagi með því að hreinsa frá þeim aur eða klaka.

Hvar gildir tryggingin?

Tryggingin gildir aðeins á þeim stað sem tilgreindur er á tryggingarskírteini.

Hverjar eru helstu skyldur þess tryggða?

Veita allar nauðsynlegar upplýsingar, hvort sem er við endurnýjun eða breytingar á tryggingunni.

Tilkynna tjón við fyrsta hentugleika og eigi síðar en innan árs frá tjónsatburði.

Hvenær og hvernig er greitt fyrir trygginguna?

Iðgjöld tryggingarinnar ber að greiða á gjalddaga. Við endurnýjun hækkar ársiðgjaldið í samræmi við breytingu á vísitölu frá grunnvísitölu samnings. Vörður sendir kröfur mánaðarlega í heimabanka eða árlega ef óskað er eftir því að greiða iðgjöld í einu lagi. Hægt er að breyta greiðslumáta á Mínum síðum Varðar. Þar er einnig hægt að velja að greiða iðgjöld með kreditkorti.

Hvenær hefst tryggingarverndin og hvernig lýkur henni?

Tryggingarsamningar gilda almennt í 12 mánuði frá samþykkt tilboðs og útgáfu tryggingar og miðast iðgjöld við ársiðgjald. Sé tryggingu ekki sagt upp á því tímabili framlengist hún sjálfkrafa.

Hvernig er tryggingunni sagt upp?

Hægt er að segja tryggingunni upp hvenær sem er á tryggingartímabilinu.