Í skilmálanum merkir hugtakið “félagið” Vörð tryggingar hf. Um vátrygginguna gilda vátryggingaskírteinið ásamt áritun og sérskilmálum, skilmálar þessir, almennir skilmálar félagsins nr. AS-1 og ákvæði laga um vátryggingarsamninga nr. 30/2004. Ákvæði í almennum skilmálum ganga framar ákvæðum þessara skilmála ef ekki er fullt samræmi þar á milli.
Vátryggingartaki og heimilisfólk hans
Vátryggingin tekur til skaðabótaábyrgðar, sem fellur á vátryggðan sem eiganda hests, hunds eða skotvopns sem tiltekin er á vátryggingaskírteini, enda sé skaðabótaskyldan bein afleiðing af tjóni á mönnum eða munum (þar með talin fasteignir og dýr) og ekki víðtækari en venjuleg skaðabótaskylda utan samninga. Innan þeirra takmarkana sem áður greiðir, vátryggir félagið einnig gegn þeirri skaðabótaskyldu, er fellur á hann vegna verka þjónustufólks á heimili hans.
Vátryggingin tekur ekki til ábyrgðar vegna skemmda á munum eða glötunar muna, sem: