Kaskótrygging eftirvagna

Upplýsingaskjal þetta tilgreinir einungis helstu atriði tryggingarinnar, s.s. hvað er innifalið og hvað ekki. Ekki er um að ræða tæmandi upptalningu né persónulegt yfirlit yfir tryggingar sem viðskiptavinir velja. Upplýsingaskjalið hefur ekki lagalega þýðingu og gegnir eingöngu þeim tilgangi að upplýsa viðskiptavini um helstu þætti tryggingarinnar. Tryggingayfirlit og nákvæmar upplýsingar um samningsskilmála sem gilda eru aðgengilegar á skírteini tryggingarinnar sem hægt er að nálgast á Mínum síðum Varðar. Skilmálar tryggingarinnar hafa að geyma tæmandi upplýsingar um tryggingarverndina og eru hluti af samningi aðila ásamt skírteini

Hvernig trygging er kaskótrygging eftirvagna?

Kaskótrygging eftirvagna er sérsniðin trygging fyrir eftirvagna aðra en ferðavagna, þ.e. aðra vagna en hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna og ferðapallhýsi (e. camper).

Tryggingin bætir

Tjón vegna áreksturs, áaksturs eða útafaksturs þess ökutækis sem dregur eftirvagninn.

Tjón vegna eldsvoða eða sprengingar sem stafar af eldsvoða. Það telst ekki eldsvoði ef eldur verður ekki laus

Tjón vegna þjófnaðar eða tilraunar til þjófnaðar og skemmdarverka.

Tjón af völdum ofsaveðurs, skilyrði bótaskyldu er að stöðugur vindhraði hafi náð 28,5 m/sek.

Tjón af völdum aur- eða vatnsflóða, skriðufalla, snjóflóða, verkfallsaðgerða eða uppþota.

Tryggingin bætir ekki

Tjón sem kemur til ef sandur, möl, aska, vikur eða önnur laus jarðefni fjúka á eftirvagn.

Tjón sem kemur til vegna steinkasts af vegi eða frá ökutæki.

Ákomur á undirvagni, dekkjum eða felgum eftirvagns sem rýra ekki notagildi, jafnvel þótt ábyrgð framleiðanda falli niður við ákomu.

Tjón á undirvagni sem rekja má til aksturs á landsvegum, stofnvegum um hálendið, slóðum eða utan vega, sem og tjón sem verða við akstur yfir óbrúaðar ár, vötn eða læki.

Tjón sem rekja má til aksturs á svæðum eða vegum sem opinberir aðilar hafa varað við akstri.

Eru einhverjar takmarkanir eða varúðarreglur?

Sé eftirvagn geymdur utandyra eða í húsnæði sem aðrir en tryggður hafa aðgengi að skal vera lás á beisli eða hann festur tryggilega við áfastan hlut með viðurkenndum lás. Sé hann geymdur innandyra skal húsnæði vera læst.

Ekki skal aka með eftirvagninn ef stöðugur vindhraði hefur náð 20 m/sek.

Tryggður skal sjá um að öryggisbúnaður eftirvagns og ökutækis sem hann dregur sé í lagi og viðeigandi miðað við aðstæður.

Tryggðum ber í kjölfar bótaskylds atburðar að grípa til viðeigandi ráðstafanna til að takmarka tjónið, svo sem með því að færa eftirvagn til skoðunar fagfólks eða færa á öruggan stað.

Hvar gildir tryggingin?

Tryggingin gildir á Íslandi. Enn fremur gildir tryggingin í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, Bretlandi og Sviss í allt að 90 daga frá brottfarardegi eftirvagns frá Íslandi. Tryggingin gildir jafnframt fyrir eftirvagn í flutningi milli landa með fyrsta flokks flutningaskipi, enda sé um árstryggingu að ræða.

Hverjar eru helstu skyldur þess tryggða?

Sé eftirvagn í útleigu eða notaður við annan atvinnurekstur en tryggður stundar að jafnaði skal tilkynna félaginu þá áhættu tafarlaust.

Þegar tjón hefur orðið er tryggðum skylt að tilkynna Verði það án tafar, auk þess sem hann skal tilkynna það lögreglunni ef um ólögmætt athæfi er að ræða.

Hvenær og hvernig er greitt fyrir trygginguna?

Iðgjöld tryggingarinnar ber að greiða á gjalddaga. Við endurnýjun hækkar ársiðgjaldið í samræmi við breytingu á vísitölu frá grunnvísitölu samnings. Vörður sendir kröfur mánaðarlega í heimabanka eða árlega ef óskað er eftir því að greiða iðgjöld í einu lagi. Hægt er að breyta greiðslumáta á Mínum síðum Varðar. Þar er einnig hægt að velja að greiða iðgjöld með kreditkorti.

Hvenær hefst tryggingarverndin og hvernig lýkur henni?

Tryggingarsamningar gilda almennt í 12 mánuði frá samþykkt tilboðs og útgáfu tryggingar og miðast iðgjöld við ársiðgjald. Sé tryggingu ekki sagt upp á því tímabili framlengist hún sjálfkrafa.

Hvernig er tryggingunni sagt upp?

Hægt er að segja tryggingunni upp hvenær sem er á tryggingartímabilinu.