Þeir sem stunda hvers konar hlaup sem almenningsíþrótt eins og götuhlaup, langhlaup eða náttúruhlaup eru tryggðir í Heimilisvernd 2, 3 og 4 þar sem slysatrygging í frítíma er innifalin. Hún nær þó ekki til þeirra sem æfa og keppa undir leiðsögn þjálfara á vegum félaga og samtaka í þeim tilgangi að stunda íþróttakeppnir.
Afreksíþróttafólk ætti að huga vel að vernd sinni og tryggja sig sérstaklega.
Slysatrygging í frítíma, sem nær til hvers konar hlaupa sem almenningsíþrótt, finnur þú í Heimilisverndum 2, 3 og 4.
Uppfyllir grunnþarfir fjölskyldunnar á hagkvæman máta.
Alhliða vernd sem inniheldur allar helstu tryggingar sem nauðsynlegar eru fyrir heimili og fjölskyldu.
Víðtækasta fjölskyldutryggingin sem er í boði.
Þeir sem stunda hvers konar hlaup sem almenningsíþrótt eru flestir tryggðir hafi þeir slysatryggingu í frítíma sem fylgir Heimilisvernd 2, 3 og 4. Afreksfólk ætti að huga vel að vernd sinni og tryggja sig sérstaklega með Almennri slysatryggingu.
Slysatrygging í frítíma, sem fylgir Heimilisvernd 2, 3 og 4 gildir fyrir þá sem eru að keppa eða æfa fyrir keppni ef um er að ræða utanvega-, víðavangs- eða götuhlaup þar sem almenningi gefst kostur á þátttöku án skilyrða um lágmarksfærni eða getu enda sé um áhugamennsku að ræða. Afreksíþróttafólk ætti að huga vel að vernd sinni og tryggja sig sérstaklega.
Slysatrygging í frítíma sem fylgir Heimilisvernd 2, 3 og 4 gildir við hlaup á fjöllum, nema fyrir ofan 4.000 metra.
Slysatrygging í frítíma sem fylgir Heimilisvernd 2, 3 og 4 gildir hvar sem er í heiminum og eru hlauparar því tryggðir erlendis. Afreksfólk ætti að huga vel að vernd sinni og tryggja sig sérstaklega með Almennri slysatryggingu.
Það er margt sem þarf að hafa í huga þegar við hlaupum af stað. Við höfum tekið saman nokkra góða punkta.
Skoða nánar