Lögfræðingur á tjónasviði

Hefur þú áhuga á að ganga til liðs við öflugt fyrirtæki í miklum vexti? Óskað er eftir sjálfstæðum og skipulögðum einstaklingi til starfa í teymi lögfræðinga sem sinna lögfræðilegri ráðgjöf og úrvinnslu tjónamála. Starfið er í senn fjölbreytt og krefjandi og hvetjum við alla áhugasama einstaklinga til að sækja um.

Starfssvið:

  • Lögfræðileg ráðgjöf við úrlausn tjóna og bótamála.

  • Tjónauppgjör og mat á bótaskyldu ásamt almennri afgreiðslu og vinnslu tjóna.

  • Samskipti, þjónusta og stuðningur við viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila.

  • Lögfræðilegar álitsgerðir, ráðgjöf og lögfræðilegur stuðningur við önnur teymi á tjónasviði.

  • Önnur tilfallandi verkefni svo sem skilmálavinna og þátttaka í vöruþróun.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Meistaranám á sviði lögfræði eða sambærileg menntun.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót.

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

  • Skipulögð og vandvirk vinnubrögð ásamt hæfni til að vinna undir álagi.

  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.Æskilegt en þó ekki skilyrði að umsækjandi hafi lögmannsréttindi og reynslu af störfum við vátryggingar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Viktor Hrafn Hólmgeirsson, teymisstjóri lögfræði og sakarmats, [email protected] eða Hrefna Kristín Jónsdóttir, framkvæmdarstjóri tjónaþjónustu, [email protected].

Eingöngu er tekið á móti umsóknum hér

Umsóknarfrestur er til 15.12.2021