Upplýsingaskjal þetta tilgreinir einungis helstu atriði tryggingarinnar, s.s. hvað er innifalið og hvað ekki. Ekki er um að ræða tæmandi upptalningu né persónulegt yfirlit yfir tryggingar sem viðskiptavinir velja. Upplýsingaskjalið hefur ekki lagalega þýðingu og gegnir eingöngu þeim tilgangi að upplýsa viðskiptavini um helstu þætti tryggingarinnar. Tryggingayfirlit og nákvæmar upplýsingar um samningsskilmála sem gilda eru aðgengilegar á vátryggingarskírteini tryggingarinnar sem hægt er að nálgast á Mínum síðum Varðar. Skilmálar tryggingarinnar hafa að geyma tæmandi upplýsingar um vátryggingarverndina og eru hluti af samningi aðila ásamt vátryggingarskírteini.
Slysatryggingin greiðir bætur til vátryggðs ef hann verður fyrir slysi um borð í skipi eða við vinnu í beinum tengslum við rekstur skips. Hún nær einnig til slysa sem skipverjar verða fyrir í frítíma ef það er sérstaklega tekið fram á skírteini tryggingarinnar. Tryggingin nær til þeirra sem ráðnir eru í skipsrúm hjá vátryggingartaka á því skipi sem tilgreint er í vátryggingarskírteini.
Líkamstjón vegna slyss. Bætur ákvarðast eftir reglum skaðabótalaga nr. 50/1993, ef það leiðir til hærri heildarbóta en ákvæði 172. gr. siglingalaga nr. 34/1985 kveða á um.
Andlát skipverja vegna slyss. Bætur ákvarðast eftir reglum skaðabótalaga nr. 50/1993, ef það leiðir til hærri heildarbóta en ákvæði 172. gr. siglingalaga nr. 34/1985 kveða á um.
Tímabundinn missi starfsorku vegna slyss. Bætur ákvarðast eftir reglum skaðabótalaga nr. 50/1993, ef það leiðir til hærri heildarbóta en ákvæði 172. gr. siglingalaga nr. 34/1985 kveða á um.
Slys sem beint eða óbeint eru af völdum kjarnabreytingar, jónandi geislunar, mengunar af geislavirkum efnum, kjarnaeldsneytis og kjarnaúrgangsefnis eða af völdum styrjaldar, innrásar, hernaðaraðgerða, uppreisnar eða svipaðra aðgerða.
Slys sem verða í frítíma vátryggðs, nema annað sé sérstaklega tekið fram á skírteini.
Slys af völdum hryðjuverka vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar.
Ef tjón verður rakið til ásetnings vátryggðs fellur bótaábyrgð Varðar niður. Tjón af völdum stórkostlegs gáleysis getur leitt til takmörkunar eða brottfalls bótaábyrgðar félagsins.
Vátryggðum ber að fylgja varúðarreglum Varðar.
Vátryggðum ber að kynna sér skilmála tryggingarinnar.
Vátryggingin gildir hvar sem er í heiminum. Nánari upplýsingar um gildissvið má finna í skilmála tryggingarinnar.
Svara öllum spurningum Varðar vegna áhættumats rétt og af heiðarleika.
Veita allar nauðsynlegar upplýsingar, hvort sem er við endurnýjun, breytingar á tryggingunni eða við tjónstilkynningu.
Tilkynna um tjón við fyrsta hentugleika og eigi síðar en innan árs frá tjónsatburði.
Reyna að afstýra tjóni eða lágmarka það. Vátryggðum ber að hlíta fyrirmælum félagins sem beinast að því að takmarka tjónið.
Breyting á starfi vátryggingataka/vátryggðs skal tilkynna félaginu án tafar.
Iðgjöld tryggingarinnar ber að greiða á gjalddaga. Við endurnýjun hækkar ársiðgjaldið í samræmi við breytingu á vísitölu frá grunnvísitölu samnings. Vörður sendir kröfur mánaðarlega í heimabanka eða árlega ef óskað er eftir því að greiða iðgjöld í einu lagi. Hægt er að breyta greiðslumáta á Mínum síðum Varðar. Þar er einnig hægt að velja að greiða iðgjöld með kreditkorti.
Tryggingarsamningar gilda almennt í 12 mánuði frá samþykkt tilboðs og útgáfu tryggingar og miðast iðgjöld við ársiðgjald. Sé tryggingu ekki sagt upp á því tímabili framlengist hún sjálfkrafa.
Viðskiptavinir geta sagt tryggingunni skriflega upp hvenær sem er á vátryggingartímabilinu. Iðgjald skal greitt fyrir það tímabil sem félagið er í ábyrgð samkvæmt vátryggingunni.