

Upplýsingaskjal þetta tilgreinir einungis helstu atriði tryggingarinnar, s.s. hvað er innifalið og hvað ekki. Ekki er um að ræða tæmandi upptalningu né persónulegt yfirlit yfir tryggingar sem viðskiptavinir velja. Upplýsingaskjalið hefur ekki lagalega þýðingu og gegnir eingöngu þeim tilgangi að upplýsa viðskiptavini um helstu þætti tryggingarinnar. Tryggingayfirlit og nákvæmar upplýsingar um samningsskilmála sem gilda eru aðgengilegar á tryggingarskírteini tryggingarinnar sem hægt er að nálgast á Mínum síðum Varðar. Skilmálar tryggingarinnar hafa að geyma tæmandi upplýsingar um tryggingarverndina og eru hluti af samningi aðila ásamt tryggingarskírteini.
Ferðatrygging fyrirtækja veitir víðtæka vernd á ferðalögum erlendis og tekur á öllum helstu bótaþáttum sem þörf er á. Tryggingin tekur til sjúkrakostnaðar sem fallið getur til lendi starfsmaður í slysi, veikist eða fellur frá á meðan á vinnuferð stendur. Einnig er hægt að tryggja tjón á farangri, varanlega örorku, dánar bætur og endurgreiðslu á fyrirframgreiddum kostnaði vegna ferða ef tryggður starfsmaður kemst ekki í ferðina og á ekki rétt á endurgreiðslu frá seljanda ferðarinnar.
Óhjákvæmilegan kostnað sem hlýst af því að tryggður slasast, veikist eða deyr á ferðalagi erlendis s.s. sjúkrahúskostnað eða viðbótarkostnað vegna veikinda s.s. hótelkostnað.
Heimferðarkostnað, s.s. sjúkraflutningakostnað að læknisráði, breytingar á flugi og/eða sjúkraflug.
Flutning á látnum einstakling.
Viðbótarkostnað vegna heimferðar til Íslands vegna alvarlegra veikinda eða andláts nánustu ættingja.
Tímabundinn missis starfsorku vegna slysa sem verða á ferðalagi.
Varanlega læknisfræðilega örorku vegna slysa sem verða á ferðalagi.
Dánarbætur vegna slysa sem verða á ferðalagi.
Bætur vegna tannbrots sem rekja má til slyss á ferðalagi.
Tjón á farangri af völdum bruna, ráns, flutningaslyss svo og ef farangur týnist í flutningi.
Ferðakostnað allt að tryggingarfjárhæð, sem greiddur er fyrirfram eða samið um greiðslu á og ekki fæst endurgreiddur.
Tjón ef tryggður eða nákomnir s.s. maki, barn eða foreldrar, verða fyrir alvarlegu slysi, skyndilegum veikindum, líkamsmeiðslum eða öðrum sambærilegum atburðum sem staðfestir eru af lækni með læknisvottorði um að viðkomandi sé ekki ferðafær.
Sjúkrakostnað sem verður á 36 viku meðgöngutíma, fæðingar eða fóstureyðingar.
Sjúkrakostnað vegna áframhaldandi læknismeðferðar.
Lyfjakostnað vegna lyfja sem tryggður notar reglulega áður en ferð hófst.
Slys sem verða í keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers konar íþróttum. Undanþága þessi á þó ekki við börn yngri en 18 ára.
Slys sem verða í hnefaleikum, hvers konar glímu- og bardagaíþróttum, akstursíþróttum, bjargsigi, fjallaklifri, froskköfun, fallhlífarstökki, teygjustökki, drekaflugi og svifflugi.
Slys sem tryggður verður fyrir í handalögmáli eða við þátttöku í refsiverðum verknaði.
Brjósklos, þursabit, liðagigt, slitgigt eða aðra gigtarsjúkdóma.
Dánarbætur ef sjúkdómar, veiklun eða sjúklegt ástand vátryggðs eru meðorsakir dauða hans.
Peninga, farmiða, ferðatékka, ávísanir, skuldabréf né önnur verðbréf.
Brothætta hluti.
Skemmdir sem hljótast af mölflögum, meindýrum, ástandi andrúmslofts, veðráttu eða eðlilegu sliti.
Skemmdir vegna vökva, matvæla eða annarra smitandi efna.
Forföll vegna hvers kyns veikinda eða sjúkdóma sem voru til staðar áður en tryggingin var tekin eða þegar staðfestingargjald var greitt.
Forföll sem verða vegna sjúkdóma sem verða eftir 36. viku meðgöngu.
Forföll vegna meiðsla sem menn valda sér sjálfir eða tjón sem tryggður hefur sjálfur.
Tryggðum ber að fylgja varúðarreglum Varðar.
Tryggður skal gæta farangurs síns vel og gera nauðsynlegar ráðstafanir, eftir því sem við verður komið til að koma í veg fyrir tjón.
Tryggingin gildir á ferðalagi erlendis fyrir starfsmenn hins tryggða. Nánari upplýsingar um gildissvið má finna í skilmála tryggingarinnar.
Veita allar nauðsynlegar upplýsingar, hvort sem er við endurnýjun, breytingar á tryggingunni eða við tjónstilkynningu.
Verði slys ber hinum slasaða að leita til læknis strax og gangast undir nauðsynlegar læknisaðgerðir og fara að fyrirmælum læknis.
Skemmist farangur eða týnist í flugi eða á meðan farangur er í vörslu flugfélags, er tjónþola skylt að tilkynna skemmdirnar/tapið strax við lendingu, eða innan 7 daga til afgreiðslu flugfélagsins á þar til gert eyðublað (P.I.R. – skýrslu).
Tilkynna um tjón við fyrsta hentugleika og eigi síðar en innan árs frá tjónsatburði.
Iðgjöld tryggingarinnar ber að greiða á gjalddaga. Vörður sendir kröfur mánaðarlega í heimabanka eða árlega ef óskað er eftir því að greiða iðgjöld í einu lagi. Hægt er að breyta greiðslumáta á Mínum síðum Varðar. Þar er einnig hægt að velja að greiða iðgjöld með kreditkorti.
Tryggingarsamningar gilda almennt í 12 mánuði frá samþykkt tilboðs og útgáfu tryggingar og miðast iðgjöld við ársiðgjald. Sé tryggingu ekki sagt upp á því tímabili framlengist hún sjálfkrafa.
Hægt er að segja tryggingunni upp hvenær sem er á tryggingartímabilinu.