Aðstoð og Öryggi

Vörður er í samstarfi við Aðstoð og Öryggi ehf. um aðstoð á vettvangi vegna umferðaróhappa á höfuðborgarsvæðinu.

Starfsmenn Aðstoðar & Öryggis mæta á staðinn og aðstoða við útfyllingu á tjónaskýrslu ásamt því að taka myndir af vettvangi og ökutækjum.

Þjónustusíminn er 578 9090 en þjónustan er endurgjaldslaus fyrir alla viðskiptavini Varðar hvort sem þeir valda óhappinu eður ei. 

Þjónustan er veitt alla virka daga milli kl. 7:45 og 18:30, en athugið að fyrst í stað er þjónustan aðeins veitt á höfuðborgarsvæðinu. 

Aðstoð & Öryggi er sjálfstætt og hlutlaust þjónustufyrirtæki sem sendir allar upplýsingar um tjónið á rafrænu formi til Varðar innan sólarhrings frá því að aðstoðin er veitt. Þannig tryggir þjónustan fljótvirkari afgreiðslu tjóna. Starfsmenn Aðstoðar & Öryggis eru eingöngu fyrrverandi eða núverandi lögreglumenn með reynslu af aðkomu árekstra og slysa og eru þeir bundnir þagnarskyldu. Þjónusta Aðstoðar & Öryggis miðast við að ekki sé um að ræða slys á fólki, en í slíkum tilfellum skal ávallt hringja í neyðarnúmer lögreglunnar, 112. 

Mikilvægt er að skýrsla um óhappið sé gerð á staðnum. Með því að draga skýrslugerð er óþarfa áhætta tekin um áreiðanleika skýrslunnar. Eyðublað fyrir tjónstilkynningu á að vera í hverjum bíl. Ef þig vantar tjónstilkynningu getur þú sótt hana hér eða sent okkur póst á [email protected] og við sendum þér skýrsluna.