Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum aðila í starf tryggingarstærðfræðings á skrifstofu forstjóra hjá Verði. Um er að ræða krefjandi, fjölbreytt og skemmtilegt starf hjá öflugu fyrirtæki í miklum vexti. Viðkomandi mun vinna náið með áhættustjóra félagsins og koma að fjölmörgum mikilvægum verkefnum.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Framkvæmd verkefna á starfssviði tryggingastærðfræðings skv. lögum um vátryggingastarfsemi
Ábyrgð á útreikningi og áreiðanleika vátryggingaskuldar
Aðkoma að áhættustýringakerfi félagsins
Aðkoma að iðgjaldaútreikningum og eftirlit með iðgjaldaskrá
Aðkoma að vöruþróun félagsins
Umbótaverkefni og bestun ferla
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun í stærðfræði eða tengdum greinum, framhaldsmenntun í tryggingastærðfræði
Reynsla af sambærilegu starfi
Geta til að setja fram efni á skýran hátt í ræðu og riti
Frumkvæði, gagnrýnin hugsun og sjálfstæð vinnubrögð
Framúrskarandi samskiptahæfni
Reynsla af umbótavinnu er kostur
Við bjóðum uppá frábæra vinnuaðstöðu í höfuðstöðvum okkar í Borgartúni 19. Þar má finna mötuneyti í heimsklassa, líkamsræktaraðstöðu, öflugt starfsmannafélag og skemmtilegan starfsanda.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, netfang: [email protected] og Thelma Lind Steingrímsdóttir, mannauðsráðgjafi, netfang: [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 18 nóvember 2024.
Við hvetjum öll áhugasöm um að sækja um.
Fullum trúnaði er heitið og umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.