Fréttir

Ný þjónustuskrifstofa Varðar í Reykjanesbæ   (30.8.2010)
Vörður hefur nú flutt þjónustuskrifstofu sína á Suðurnesjum í nýtt og glæsilegt húsnæði í verslunar- og þjónustumiðstöðinni Krossmóa.


Héraðsdómur dæmir bætur úr sjúkdómatryggingu skattskyldar   (7.7.2010)

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur nú dæmt í máli þar sem deilt var um hvort bætur úr sjúkdómatryggingu væru undanþegnar tekjuskatti. Taldi dómurinn að bætur úr sjúkdómatryggingu skuli bera tekjuskatt og er sá dómur í takt við úrskurð Yfirskattanefndar frá því í haust.



Vörður tekur þátt í eflingu eldvarna á heimilum   (4.6.2010)

Nýverið var settur á laggirnar samstarfshópur sem ætlað er að stuðla að bættum eldvörnum heimila í landinu. Vörður tryggingar tekur þátt í verkefninu ásamt öðrum tryggingafélögum, stofnunum og félagasamtökum og skrifaði Guðmundur Jóhann Jónsson, framkvæmdastjóri Varðar trygginga, undir samstarfssamninginn fyrir hönd félagsins þegar verkefninu var formlega hleypt af stokkunum 1. júní sl.



Vörður er aðalstyrktaraðili Breiðabliks   (5.5.2010)

Vörður tryggingar og Knattspyrnudeild Breiðabliks hafa skrifað undir samning um að Vörður verði aðalstyrktaraðili deildarinnar. Nær samningurinn til þriggja ára og á þeim tíma mun merki Varðar prýða búninga knattspyrnumanna og –kvenna Breiðabliks í öllum aldursflokkum.



Yfirlýsing frá Verði vegna fréttar DV   (30.4.2010)

Vegna fréttar DV í dag vill félagið taka fram eftirfarandi:



Færeyjabanki heitir nú BankNordik   (30.4.2010)

Færeyjabanki, sem er meirihlutaeigandi Varðar trygginga, hefur skipt um nafn og heitir nú BankNordik. Bankinn hefur að undanförnu aukið umsvif sín á Norðurlöndunum, meðal annars með kaupum á tólf bankaútibúum Sparbank í Danmörku og Grænlandi, auk þess að hafa keypt meirihluta í Verði tryggingum í október á síðasta ári.



Vörður styrktaraðili Badmintonsambandsins   (27.4.2010)

Vörður tryggingar verður aðalstyrktaraðili Badmintonsambands Íslands næsta árið og var samstarfssamningur þess efnis undirritaður í gær. Landsliðsbúningar badmintonfólks munu því skarta merki Varðar á næsta keppnistímabili.



Eldgos í Eyjafjallajökli – Upplýsingar   (19.4.2010)

Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli vill félagið koma á framfæri ýmsum upplýsingum þar að lútandi.

Tjón á eignum

Almenna reglan er að tjón af völdum eldgoss er bætt af Viðlagatryggingu. Forsenda fyrir því er þó að viðkomandi eignir séu brunatryggðar og greitt sé iðgjald til Viðlagatryggingar. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Viðlagatryggingar, http://www.vidlagatrygging.is/



Mottumars í Verði   (22.3.2010)

Vörður tekur þátt í liðakeppni krabbameinsfélagsins í mars og hvetur alla starfsmenn og viðskiptavini til að leggja góðu málefni lið með því að heita á fyrirtækið.



Vörður með ánægðustu viðskiptavinina   (23.2.2010)

Ánægðustu viðskiptavinir tryggingafélaga árið 2009 voru hjá Verði tryggingum samkvæmt niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar sem kynntar voru í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem Vörður trónir á toppnum í flokki tryggingafélaga en félagið hefur sótt jafnt og þétt í sig veðrið frá því það tók fyrst þátt í ánægjuvoginni árið 2007. Þá var félagið í þriðja sæti, ári síðar var Vörður í öðru sæti og í ár var toppnum náð. Öll fjögur tryggingafélögin á markaðnum taka þátt í Íslensku ánægjuvoginni.



Engar athugasemdir við starfsemi Varðar   (23.2.2010)
Fjármálaeftirlitið tilkynnti þann 22.febrúar síðastliðinn að það hefði framkvæmt athugun á iðgjöldum og viðskiptaháttum íslensku vátryggingafélaganna á síðari hluta árs 2009.

Bætur úr sjúkdómatryggingu   (20.1.2010)

Nýlega úrskurðaði Yfirskattanefnd að skattleggja skyldi bætur úr sjúkdómatryggingu. Hingað til hefur túlkun á lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 verið á þann veg að bætur úr sjúkdómatryggingu teljist ekki til skattskyldra tekna og er þessi úrskurður því óvæntur.



Tjón vegna asahláku og hvassviðris   (7.1.2010)

Vörður vill minna á nokkur heilræði til að draga úr líkum á tjónum og óþægindum sem geta orðið vegna veðurfars.



Kaup Føroya banka í Verði lokið   (26.11.2009)
Kaup Føroya Banka á 51% hlut í Verði tryggingum hf. sem tilkynnt voru þann 5. október sl. eru nú gengin formlega í gegn. Það gerðist í kjölfar þess að samþykki fyrir kaupunum fékkst frá Fjármálaeftirlitinu á Íslandi, í Danmörku og Færeyjum og Samkeppniseftirlitinu á Íslandi


Viðskiptaráðherra Færeyja í heimsókn   (13.11.2009)
Viðskiptaráðherra Færeyja, Johan Dahl, heimsótti Vörð fyrir skemmstu. Ráðherrann heilsaði upp á starfsmenn og skoðaði húsakynni félagsins. Með honum í för var starfsmaður ráðuneytisins, Søren Pram Sørensen.

Føroya Banki eignast meirihluta í Verði tryggingum hf.   (5.10.2009)

Í dag var undirritað samkomulag á milli hluthafa Varðar trygginga hf. og Føroya Banka um aðkomu bankans að tryggingafélaginu. Samkvæmt samkomulaginu auka Føroya Banki og núverandi hluthafar Varðar, SP-Fjármögnun hf., NBI hf. og Byr sparisjóður, hlutafé félagsins um 700 milljónir króna. Með kaupum á hlutafé af núverandi hluthöfum fyrir 550 milljónir króna og 600 milljóna króna hlutafjáraukningu nemur fjárfesting Føroya Banka samtals 1.150 milljónum króna. Eignast bankinn þannig 51% hlut í Verði og verður félagið dótturfélag Føroya Banka. Núverandi hluthafar verða áfram virkir meðeigendur þannig að hluthafahópur Varðar bæði stækkar og eflist.



Vörður styrkir „Á allra vörum“   (31.8.2009)

Vörður tryggingar hefur lagt söfnuninni "Á allra vörum" lið með fjárframlagi. Söfnunin fór fram til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Söfnunarféð mun verða notað til þess að byggja hvíldarheimili fyrir krabbameinssjúk börn og fjölskyldur þeirra.



Góðir nágrannar – nágrannavarsla   (14.8.2009)
Innbrotafaraldur hefur geisað í höfuðborginni undanfarna mánuði. Fyrstu sjö mánuði ársins voru að jafnaði um 250 innbrot tilkynnt á mánuði til lögreglunnar, en voru á sama tímabili í fyrra um 150.

Vörður styrkir Afreksmannasjóð ÍBH   (15.6.2009)
Afreksmannasjóður ÍBH úthlutaði á dögunum afreksstyrkjum til íþróttafélaganna í Hafnafirði.


Með hækkandi sól og sumri ...   (19.5.2009)
......er að mörgu að huga svo sem hjólreiðabúnaði og sólbruna.

Nagladekk óleyfileg eftir 15.apríl   (16.4.2009)

Rétt er að minna eigendur ökutækja á að tími nagladekkjanna á þessum vetri rann út í gær, miðvikudaginn 15. apríl. Ökumenn eru hvattir til að skipta um hjólbarða við fyrsta tækifæri.



Vörður styrkir landssöfnun Hjartaheilla   (31.3.2009)

Vörður tryggingar og Vörður líftryggingar hafa lagt söfnuninni „Öll þjóðin – eitt hjarta“ lið með fjárframlagi en allt söfnunarfé mun renna óskipt til hjartasjúkdómadeildar Landspítala Háskólasjúkrahúss. Tilgangur söfnunarinnar er að kaupa nýtt hjartaþræðingartæki sem mun stuðla að styttingu biðlista eftir hjartaaðgerðum hér á landi.



Ánægðir viðskiptavinir   (6.3.2009)

Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar hafa nú verið kynntar en viðskiptavinir Varðar gáfu félaginu góða einkunn og er félagið nú í öðru sæti meðal íslenskra tryggingafélaga.



Innbrot eða þjófnaður   (5.2.2009)
Það sem af er árinu hefur orðið mikil fjölgun innbrota á heimili og í bíla. Hvetjum við fólk að vera á varðbergi og gæta vel að skilja aldrei við hús eða ökutæki ólæst. Einnig er mikilvægt að skilja aldrei eftir sjáanleg verðmæti í bílum því það getur boðið hættunni heim.