Almenn slysatrygging
Almenn slysatrygging greiðir bætur til vátryggðs vegna varanlegrar örorku sem til kemur í kjölfar slysa við vinnu og í frítíma. Einnig er hægt að kaupa sér vernd fyrir tímabundinni örorku (dagpeninga), og dánarbætur vegna slyss. Ef vátryggður stundar einhverja séráhættu eins og köfun eða fallhlífastökk er hægt að kaupa sérstaka vernd sem tekur til þessara þátta.
Með orðinu slys er átt við skyndilegan utanaðkomandi atburð sem veldur tjóni á líkama þess sem vátryggður er og gerist án vilja hans.
Sá hámarksaldur sem viðskiptavinur getur komið inní tryggingu er 65 ára, en vátryggingin er í gildir til 75 ára aldurs.
Slysatryggingin gildir hvar sem er í heiminum.
Tengdar skrár